Þórsstúlkur heiðraðar
25. mars, 2024 - 20:42
Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi.
Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið.
Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum.
Nýjast
-
Fór að hekla á meðan hann var fótbrotinn
- 27.04
„Þetta var skemmtilegt verkefni og veitt mér mikla gleði,“ segir Kormákur Rögnvaldsson hársnyrtinemi sem dundaði sér við það að hekla heilmikið dúlluteppi, með 187 dúllum, 10X10 að stærð hver. Ástæða þess að hann hóf að hekla teppið var sú að hann fótbrotnaði og þegar fóturinn þarf hvíld er best að nýta hendurnar til að gera eitthvað uppbyggilegt á meðan brotið grær. -
Hreyfiglöð handboltakempa og lektor í lífeðlisfræði
- 27.04
Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Vísindamanneskjan í apríl er Nanna Ýr Arnardóttir, lektor í lífeðlisfræði við Hjúkrunarfræðideild. Nanna Ýr hefur ofurtrú á hreyfingu sem forvörn hverskonar og hefur með það að leiðarljósi aflað sér yfirgripsmikillar þekkingar á því sviði. -
Rekstur Norðurorku skilaði 629 milljón króna hagnaði
- 27.04
Rekstur Norðurorku gekk vel á liðnu ári. Ársvelta samstæðunnar var 5 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 629 milljónir króna eftir skatta, eigið fé er 10 milljarðar króna. Á aðalfundi félagsins fyrr í vikunni var ákveðið að ekki verði greiddur arður af hlutafé. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og NORAK ehf. -
Árangursrík sýning í Barcelona:
- 26.04
Sýningin tókst frábærlega. Það var stríður straumur gesta í básinn til okkar alla sýningardagana og mikill áhugi á okkar þjónustu og tæknilausnum," segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippsins Akureyri, um þátttöku fyrirtækisins í sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global í Barcelona á Spáni. Sýningin stóð í þrjá daga og lauk síðdegis í gær. -
Skemmdarverk unnin á rútum.
- 26.04
Hún var ekki skemmtileg aðkoma sem blasti við Jónasi Þór Karlssyni eigenda Sýsla Travel þegar hann kom, síðdegis í gær, til að líta til með bílakosti fyrirtækis hans sem staðsettar eru á nýju bílastæði við Laufásgötu 4 á Akureyri. Einhverjir lítt vandaðir höfðu farið um og brotið glugga í rútum Jónasar. Gluggar í svona bílum er sterkir svo nokkur fyrirhöfn hefur verið við að vinna þessi óskiljanlegu skemmdarverk. -
Ársfundur SSNE Skorar á stjórnvöld að tryggja nægt fé til löggæslu
- 26.04
„Lögreglan á Norðurlandi þarf að hafa þann styrk sem nauðsynlegur er ef upp koma alvarlegri mál í því skyni að geta sinnt hlutverki sínu og tryggt öryggi borgaranna,“ segir í ályktun sem samþykkt var á ársþingi SSNE sem haldið var í Þingeyjarsveit nýverið. Skorað var á stjórnvöld að tryggja nú þegar nauðsynleg fjárframlög til málaflokksins. -
Akureyri - Framkvæmdir við Torfunef
- 26.04
Framkvæmdir við stækkun Torfunefsbryggju ganga ágætlega um þessar mundir. Lóðir verða boðnar út á næstu vikum og gangi allt að óskum verður hafist handa við að reisa hús á svæðinu á næsta ári. -
Stöðugur straumur á bás Samherja og Ice Fresh Seafood í Barcelona - Aðsóknarmet slegið -
- 26.04
Alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global í Barcelona lauk í gær , fimmtudag. Samherji og Ice Fresh Seafood voru með veglegan bás á þessari stærstu sjávarútvegssýningu heims á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða. 2.244 fyrirtæki taka þátt í sýningunni frá 87 þjóðlöndum. -
Lokaorðið - Sumardagurinn fyrsti.
- 25.04
Sumardagurinn fyrsti er ævaforn hátíðisdagur á Íslandi. Þó líði aldir og kynslóðir komi og fari er ekkert sem Íslendingar þrá heitar en vorið. Hjörtun slá þá í mildum samhljóma takti og loks er liðin vetrarþraut. Sumardagurinn er einnig þekktur sem barnadagurinn. Í þéttbýlinu gerði fólk sér dagamun og klæddist sparifötum.
Athugasemdir