-
þriðjudagur, 07. maí
Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf
Vátryggingafélag Íslands hf. (Skagi) hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. (ÍV) um kaup Skaga á 97,07% hlutafjár í félaginu. Horft er til þess að í kjölfarið verði farið í kaup hlutafjár annarra hluthafa þannig að Skagi verði einn eigandi alls hlutafjár í Íslenskum verðbréfum. Kaupverð 97,07% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum er 1.598 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé, en Skagi hefur val um að greiða allt að fjórðungi kaupverðsins með afhendingu nýs hlutafjár í Skaga. Fyrirtækjaráðgjöf og sérhæfðar fjárfestingar eru undanskilin í kaupunum. Jóhann M. Ólafsson, forstjóri ÍV, hefur stigið til hliðar og Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri ÍV sjóða, hefur tekið tímabundið við sem forstjóri félagsins. -
þriðjudagur, 07. maí
Amtsbókasafnið - Býður garðverkfæri í útlán
Áður hefur verið haft á orði á þessum vef að starfsfólkið á Amtinu hér í bæ sé skemmtilega ferskt og fái líflegar hugmyndir sem notendur safnsins kunna vel að meta. Í frétt frá þeim í dag er sagt frá að nú sé hægt að fá garðverkfæri, takk fyrir takk, að láni hjá Amtsbókasafninu! Kæru safngestir! NÝJUNG! - Við erum farin að bjóða upp á garðverkfæri til útláns! Það er farið að vora á Akureyri og kominn tími til að byrja vorverkin. Frá og með deginum í dag eru garðverkfæri til útláns hjá okkur, lánstími er 7 dagar. Verkfæri sem eru í boði: handskófla, lítil klóra, stungugaffall, stunguskófla, kantskeri, handklippur, greinaklippur, fata, beðhrífa, fíflajárn, greinasög og garðáhöld fyrir börn. Vinsamlegast þrifið verkfærin vel áður en þið skilið.- 07.05
-
þriðjudagur, 07. maí
Dýrahræ fundust á víðavangi við Línuveg á Húsavík
Steingrímur Hallur Lund rak í rogastans á dögunum þegar hann var úti að viðra hundinn sinn úti á Bakka við Línuveg í landi Húsavíkur. Hann var ekki komin langt frá veginum þegar hann gekk fram á dauða rollu, sem búið var að klippa af eyrun. Skammt undan gekk hann svo fram á fimm selshræ.- 07.05
-
þriðjudagur, 07. maí
Krían komin til Grímseyjar
Fyrstu kríurnar þetta árið í Grímsey sáust um helgina. Varpið þar er með stærri kríubyggðum á landinu og er talið að þar verpi þúsundir para. Litlar rannsóknir hafa verið gerðar á breytingum kríuvarpa frá ári til árs en margt bendir til fækkunar víða á landinu frá því um aldamót, einnig hefur orðið vart við sömu þróun í nágrannalöndum okkar.- 07.05
-
mánudagur, 06. maí
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Rannsókn á máli þar sem fimmtug kona fannst látin á heimili sínu þann 22. apríl síðastliðinn miðar vel.- 06.05
-
mánudagur, 06. maí
HSN - Ekki óútskýrður kynbundin launamunur
„Það er ánægjulegt að greina frá því að ekki hefur greinst óútskýrður kynbundin launamunur í launagreiningum HSN enda kyn hreint ekki áhrifabreyta á árangur fólks í starfi,“ segir á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, en HSN fékk endurnýjun á Jafnlaunavottun á dögunum.- 06.05
-
mánudagur, 06. maí
Börn og ungmenni í Hrísey vilja gervigrasvöll
Börn og ungmenni í Hrísey hafa lengi kallað eftir því að fá gervigrasvöll á skólalóðina sína líkt og er hjá öllum öðrum grunnskólum í sveitarfélaginu. Málið var rætt á bæjarstjórnarfundi unga fólksins á dögunum.- 06.05
-
mánudagur, 06. maí
Tökum höndum saman og hreinsum bæinn eftir veturinn
Vorhreinsun sveitarfélagsins er í fullum gangi. Opin svæði eru hreinsuð ásamt því að götur, gangstéttar og stígar eru sópaðir og þvegið er af miklum krafti.- 06.05
-
mánudagur, 06. maí
Kynning - Dagar stækka við sig á Norðurlandi
Fyrirtækið Dagar, sem sérhæfir sig í ræstingum, fasteignaumsjón og vinnustaðalausnum, flutti nýverið í stærra húsnæði að Furuvöllum 7. Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki þar sem starfa tæplega 800 manns og starfsstöðvar eru á þremur stöðum á landinu; í Garðabæ, á Selfossi og á Akureyri.- 06.05
Aðsendar greinar
-
Hallgrímur Gíslason skrifar
Samanburður á gjaldskrám nokkurra sveitarfélaga
Öldungaráð Akureyrarbæjar ákvað að bera saman gjaldskrár nokkurra valinna sveitarfélaga vegna þjónustu við eldri borgara. Starfsmaður Akureyrarbæjar fékk það verkefni að taka þær saman. Síðan tóku fulltrúar EBAK í ráðinu við, bættu við atriðum og aðlöguðu að óskum sínum. -
Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina
Eitt aðaleinkenni þjóðkirkjunnar, kirkju þjóðarinnar er hún að hún hefur þá grunnskyldu að veita kirkjulega þjónustu um allt land. Henni ber að þjóna fólki í sveit og borg, í þorpum og bæjum, þeim sem búa afskekkt og þeim sem búa þétt. Þetta er ekki einfalt hlutverk því þegar upp er staðið er það fjárhagurinn sem stýrir því hversu breið og öflug sú þjónusta er. Sóknargjöldin sem ríkið innheimtir fyrir þjóðkirkjuna hafa verið skert af hálfu ríkisins frá því í hruninu og jafnvel eitthvað fyrr. Þetta hefur gert það að verkum að erfiðara er að halda úti þjónustu safnaða og halda við kirkjubyggingum sem margar hver eru menningarleg þjóðarverðmæti. Þá hefur vígð þjónusta verið skert þar sem kirkjan hefur þurft að fara í sparnaðaraðgerðir auk þess sem fólksflutningar hafa orðið á ákveðnum svæðum. -
Gunnar Níelsson skrifar
Ísland í 80 ár! Málþing um stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi
Hömrum, Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, laugardag 4. maí 2024, kl. 14:00-17:00. AkureyrarAkademían stendur fyrir opnu málþingi í tilefni af því að á þessu ári eru 80 ár frá því að lýðveldi var stofnað á Íslandi þann 17. júní 1944. Málþinginu er ætlað að vera vettvangur fyrir samræður og skoðanaskipti fræðimanna og almennings um lýðveldisstofnunina, stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi. Hvernig hefur tekist til? Hvaða lærdóma má draga? -
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar skrifar
Hefur allt sem þarf
Fyrstu kynni mín af Höllu Tómasdóttur voru í tengslum við vinnustað þar sem hún kom einn dag og ræddi við hópinn. Þessi dagur breytti svolítið lífi mínu því þarna uppgötvaði ég í raun hvernig ég get tekið stjórn á eigin lífi. Halla varpaði á skjá mynd af vatnsglasi sem í var vökvi um það bil að miðju glasi. Hún talaði um viðhorf okkar og hvernig við tökumst á við það sem lífið færir okkur.
Mannlíf
-
Amtsbókasafnið - Býður garðverkfæri í útlán
Áður hefur verið haft á orði á þessum vef að starfsfólkið á Amtinu hér í bæ sé skemmtilega ferskt og fái líflegar hugmyndir sem notendur safnsins kunna vel að meta. Í frétt frá þeim í dag er sagt frá að nú sé hægt að fá garðverkfæri, takk fyrir takk, að láni hjá Amtsbókasafninu! Kæru safngestir! NÝJUNG! - Við erum farin að bjóða upp á garðverkfæri til útláns! Það er farið að vora á Akureyri og kominn tími til að byrja vorverkin. Frá og með deginum í dag eru garðverkfæri til útláns hjá okkur, lánstími er 7 dagar. Verkfæri sem eru í boði: handskófla, lítil klóra, stungugaffall, stunguskófla, kantskeri, handklippur, greinaklippur, fata, beðhrífa, fíflajárn, greinasög og garðáhöld fyrir börn. Vinsamlegast þrifið verkfærin vel áður en þið skilið. -
Dýrahræ fundust á víðavangi við Línuveg á Húsavík
Steingrímur Hallur Lund rak í rogastans á dögunum þegar hann var úti að viðra hundinn sinn úti á Bakka við Línuveg í landi Húsavíkur. Hann var ekki komin langt frá veginum þegar hann gekk fram á dauða rollu, sem búið var að klippa af eyrun. Skammt undan gekk hann svo fram á fimm selshræ. -
Krían komin til Grímseyjar
Fyrstu kríurnar þetta árið í Grímsey sáust um helgina. Varpið þar er með stærri kríubyggðum á landinu og er talið að þar verpi þúsundir para. Litlar rannsóknir hafa verið gerðar á breytingum kríuvarpa frá ári til árs en margt bendir til fækkunar víða á landinu frá því um aldamót, einnig hefur orðið vart við sömu þróun í nágrannalöndum okkar. -
HSN - Ekki óútskýrður kynbundin launamunur
„Það er ánægjulegt að greina frá því að ekki hefur greinst óútskýrður kynbundin launamunur í launagreiningum HSN enda kyn hreint ekki áhrifabreyta á árangur fólks í starfi,“ segir á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, en HSN fékk endurnýjun á Jafnlaunavottun á dögunum. -
Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar - Blöndulína 3 þrengir að landlitlu sveitarfélagi
„Um er að ræða gríðarlega mikla hagsmuni Akureyrarbæjar, enda ljóst að umrædd lína þrengir að því landlitla sveitarfélagi sem Akureyrarbær er, getur hindrað vöxt þess og er líkleg til að rýra gæði þeirrar byggðar sem fyrir er,“ segir í bókun umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar, en á fundi ráðsins voru lögð fram drög að umsögn vegna lagningar Blöndulínu í gegnum land Akureyrarbæjar frá norðri og að Rangárvöllum.
Íþróttir
-
,,Þetta snýst þá bara um að fara rútuferð á fimmtudaginn”
Það var sannkölluð háspenna sem boðið var upp á í leik Þórs og Fjölnis í Íþróttahöllinni í kvöld. Tækist Þór að sigra væri sæti í Olis deild karla næsta keppnistímabil í höfn, færi Fjölnir með sigur þyrfti oddaleik n.k fimmtudag í Reykjavík. -
Stórleikur í Höllinni í dag!
Í dag nánar tiltekið kl 18.30 verður blásið til leiks hja Þór og Fjölni í einvígi þessara félaga um sæti i efstu deild í handbolta keppnistímabilið 2024-2025.Þór hefur tvö vinninga en Fjölnir einn. Alls þarf þrjá vinninga til að tryggja sér sæti í efstu deild svo segja má að staða Þórsara sé afar vænleg fyrir leikinn en staðan ein og sér gerir ekkert, það þarf að klára málið. -
Fjórir norðanmenn unnu brons á Íslandsmótinu í bridge.
Akureyringarnir, Frímann Stefánsson, Pétur Guðjónsson og Reynir Helgason gerðu góða ferð suður til Reykjavíkur un helgina með Mývetningnum Birni Þorláks þar sem verkefnið var að etja kappi við sterkustu lið landsins í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni. Sveitin keppti undir merki Kjöríss. -
KA vann bæjarslaginn
KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór yfirspilaði KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru því með verðskuildaða forustu í hálfleik. -
Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi. Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið. Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum.