Þéttbýlið í Hörgárbyggð heitir Lónsbakki
Þéttbýlið í Hörgárbyggð heitir Lónsbakki, samkvæmt nýlegri ákvörðun sveitarstjórnar. Tillaga um
það kom frá skipulags- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins. Þéttbýlið nær yfir göturnar Skógarhlíð og Birkihlíð,
ásamt Lóni, Lónsá, Berghóli I og II, Húsamiðjulóðinni, lóð Þórs- og DNG-húss og lóð
leikskólans Álfasteins. Svæðið með íbúðagötunum hefur ýmist verið nefnt Spyrnuhverfi, Skógarhlíð eða
Skógarhlíðarhverfi, en flestar atvinnulóðirnar hafa verið kenndar við Lónsbakka.
Nú hefur sem sé verið ákveðið allt svæðið fái heitið Lónsbakki. Hagstofunni hefur verið tilkynnt um þessa nafngift og
er þess vænst að hún festist í sessi, segir á vef Hörgárbyggðar.