Gylfi Víðisson og Hafþór Björnsson / myndir samherji.is/áhöfn Snæfells
Áhöfn Snæfells EA-310, frystitogara Samherja, tók þátt í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands. Í upphafi var stefnan sett á að safna 250 þúsund krónum en niðurstaðan varð 471 þúsund krónur.
Snæfell kom til löndunar á Akureyri á mánudaginn. Skömmu fyrir upphaf veiðiferðarinnar afhenti Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri áhöfninni Mottumarssokka en félagið færði öllum karlmönnum sem starfa hjá Samherja Mottumarssokka og styrkti þannig Krabbameinsfélagið.
Þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein
Gylfi Víðisson undirstýrimaður á Snæfelli segir að fljótlega hafi komið fram hugmynd um að taka þátt í skeggkeppni Mottumars og safna fyrir góðu málefni.
„Það var í raun Hafþór Björnsson háseti sem leiddi þetta og hvatti aðra í áhöfninni til dáða. Staðreyndin er að þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni, þannig að þetta stendur okkur í raun nærri og áhöfnin var því sammála um að taka virkan þátt í Mottumars.“
Langt umfram væntingar
Hafþór Björnsson segir að söfnunin hafi farið tiltölulega rólega af stað en hafi tekið kipp er leið á veiðiferðina.
„Við höfum séð örlítil merki þess undanfarin ár að raforkunotkun er að potast aðeins upp á við,“ segir Stefán H. Steindórsson sviðsstjóri hjá Norðurorku. Raforkunotkun á Akureyri hefur staðið í stað um árabil þó svo að bærinn hafi stækkað og íbúum fjölgað.
Það er aldrei of seint að skella sér í nám og láta draumana rætast. Þetta eru skilaboð Andreu Margrétar Þorvaldsdóttur, sem mun útskrifast sem rafvirki frá VMA í næstu viku. Það er í mörg horn að líta fyrir Andreu þessa dagana því auk þess að ljúka náminu með formlegum hætti undirbýr hún sig núna af krafti fyrir sveinspróf í rafvirkjun í byrjun júní og einnig fagnar hún fimmtugsafmæli sínu nk. föstudag. Stórafmælis- og útskriftarveisla er því á dagskránni nk. laugardag.
Sasha Pirker lýsir upp Verksmiðjuna með úrvali kvikmyndainnsetninga og staðbundinni svörun við aðstæðum sem nær yfir síðustu tíu ár starfsferils hennar. Þessi verk bera vitni ekki aðeins víðtækri forvitni listamannsins og rannsóknartilfinningu, heldur eru þau einnig grundvölluð á bakgrunni hennar í málvísindum. Hugsun í gegnum tungumál, tilraunakennda frásögn, persónulegt og byggingarfræðilegt rými og möguleika, verk Sasha sýna næmni fyrir reynslu, þekkingu og skilningi. Þau eru stundum persónuleg eða viðkvæm og gefa þá tilfinningu að kvenlinsan sem kvikmyndir hennar verða og eru til í gegnum séu bæði hugsandi og óvænt, nýstárleg og umvefjandi.
Í dag, föstudaginn 17. maí kl. 14.30 fer fram hátíðleg athöfn þar sem skrifað verður undir samning um stækkun á húsnæði skólans. Mennta- og barnamálaráðherra ásamt bæjarstjóranum á Akureyri og sveitarstjórum í Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppi og Grýtubakkahreppi munu skrifa undir samning um byggingu 1500m2 húsnæðis við skólann.
Athugasemdir