Þjónustunefnd AA leitar að framtíðarhúsnæði

Standgata 21, oft kallað AA húsð er gamalt og þarfnast viðhalds.
Standgata 21, oft kallað AA húsð er gamalt og þarfnast viðhalds.

Brýnt er að ráðast í gagngerar endurbætur á húsinu að Strandgötu 21 þar sem AA-samtökin á Akureyri hafa haft aðstöðu sína um langt árabil.

Húsið, sem var byggt árið 1897, er í eigu Akureyrarbæjar og þarf að endurnýja þak þess, skipta um glugga, og koma í veg fyrir fúa og rakaskemmdir. Enginn þarf að velkjast í vafa um mikilvægi starfs AA-samtakanna fyrir samfélagið okkar og samtökin verða í húsinu þar til önnur lausn finnst á húsnæðismálum þeirra.   

Ástand hússins er hins vegar orðið afar slæmt og því leitar þjónustunefnd AA-hússins nú að nýju framtíðarhúsnæði til leigu með stuðningi Akureyrarbæjar.

Frá þessu segir á Facebooksíðu Akureyrarbæjar.


Athugasemdir

Nýjast