Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps Nú sem áður gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Svalbarðsstrandarhreppur býður nú sem áður uppá gjaldfrjálsar skólamáltíðir.    Mynd  svalbardsstron…
Svalbarðsstrandarhreppur býður nú sem áður uppá gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Mynd svalbardsstrond.is

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps fagnar því að aðilar á vinnumarkaði hafi sameinast um skynsamlega langtíma kjarasamninga með áherslu á minni verðbólgu, lægri vexti, aukinn fyrirsjáanleika og þar með að skapa skilyrði fyrir stöðugleika í íslensku efnahagslífi.

 Sveitarstjórn samþykkti að í tengslum við kjarasamninga verði gjaldskrárhækkanir er varða leikskóla og grunnskóla endurskoðaðar og færðar niður í 3,5% hækkun. Þessi breyting tók gildi 1. apríl 2024. Svalbarðsstrandarhreppur býður nú sem áður uppá gjaldfrjálsar skólamáltíðir.


Athugasemdir

Nýjast