-
fimmtudagur, 16. maí
Kirkjugarðar Akureyrar í rekstrar vanda og næsta skref að loka líkhúsinu
„Hvað verður um líkin?“ er spurning sem Akureyringar og nærsveitarmenn velta fyrir sér þessa dagana, en Kirkjugarðar Akureyrar sem reka líkhús og kapellu á Naustahöfða eru í rekstravanda vegna fjárskorts. Kirkjugörðunum er óheimilt að innheimta þjónustugjald vegna starfsemi líkhúsanna. Einkaaðilar gætu innheimt slíka gjöld en fáir hafa áhuga á að reka líkhús hér á Akureyri. Engin leið önnur er út úr vandanum nema sú að hætta rekstri líkhússins. Stefnir í að skellt verði í lás grípi Alþingi ekki í taumana á vorþingi og geri Kirkjugörðum heimilt að innheimta þjónustugjaldið eða leggja til fjármagn til starfseminnar. -
fimmtudagur, 16. maí
Fann sig í sálfræði og flýgur nú út í frekara nám
Þegar Emma var ung ætlaði hún að verða læknir eins og langafi. Í menntaskóla áttaði hún sig á því að líffræði væri alls ekki fag sem hún hafði gaman af og þá læknisfræðin ekki það sem fyrir henni lægi. Emma hafði hins vegar mjög gaman af sálfræðinni og eftir einn tímann kom kennarinn upp að Emmu, tjáði henni hversu efnileg hún væri á því sviði og fékk hana til að íhuga frekara nám í fræðunum.- 16.05
-
miðvikudagur, 15. maí
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri hjá LA
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Bergur Þór tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gengt starfinu síðustu í sex árin.- 15.05
-
miðvikudagur, 15. maí
Kylfingar geta tekið gleði sína, Jaðarsvöllur opnar n.k. þriðjudag
Kylfingar á Akureyri geta nú heldur betur tekið gleði sína því stefnt er að þvi að opna Jaðarsvöll n.k þriðjudag samkvæmt þvi sem segir á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar.- 15.05
-
miðvikudagur, 15. maí
Viðræður eru hafnar um hugsanlegan samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar
Frá þessu segir í tilkynningu frá Samkaupum en þar sem kemur fram að s.l. mánuði hafi Samkaup hf. og Skel fjárfestingarfélag rætt um kosti og galla hugsanlegan samruna fyrirtækjanna.- 15.05
-
miðvikudagur, 15. maí
Félagslegt húsnæði í Grímsey Ekkert til fyrirstöðu að selja
Velferðarráð Akureyrarbæjar sér ekkert því til fyrirstöðu að húsnæði í eigu bæjarins verði selt.- 15.05
-
miðvikudagur, 15. maí
25 ár frá sameiningu Einingar og Iðju
Í dag, 15. maí, eru liðin 25 ár síðan formlega var gengið frá samruna Verkalýðsfélagsins Einingar og Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Þótt þetta sameinaða félag eigi sér þannig séð ekki langa sögu stendur það á gömlum merg því félögin eiga sér hvort um sig langa og merka sögu í baráttu verkafólks fyrir réttindum sínum. Sögu Iðju má rekja allt aftur til ársins 1936 og er stofndagur félagsins talinn 29. mars það ár. Verkalýðsfélagið Eining varð til 10. febrúar 1963 með sameiningu Verkakvennafélagsins Einingar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Rætur Einingar ná þó mun lengra aftur og má segja að fyrsta fræinu hafi verið sáð árið 1894 þegar Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar, hið eldra, var stofnað.- 15.05
-
miðvikudagur, 15. maí
Buðu upp á bakkelsi frá Suður-Ameríku
Andressa Andrade E. Andrade, Celimar Yerlin Gamboa Maturet, Feiruz Nasser Morabito, Haysmar Ledosvkaya Rangel Blanco og Fiora Alessa Pacini Barragán eru í hópi nemenda af erlendum uppruna sem hafa stundað nám í VMA í vetur, m.a. lagt stund á nám í íslensku sem öðru máli.- 15.05
-
þriðjudagur, 14. maí
Knattsp.deild KA dæmd til að greiða fyrrverandi þjálfara sínum tæpar ellefu milljónir
Knattspyrnudeild KA var í dag dæmd í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða fyrrum þjálfara sínum 8,8 milljónir króna auk dráttarvaxta frá 5 nóvember 2023 vegna ágreinings aðila um túlkun á bónusgreiðslum til handa þjálfarans. KA er einning gert að greiða málskostnað þjálfarans fyrrverandi. Aðspurður sagði Hjörvar Maronsson formaður knd KA að verið væri að fara yfir dóminn og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um næstu skref.- 14.05
Aðsendar greinar
-
Ingvar Örn Ingvarsson skrifar
Þrír dæmigerðir dagar skemmtiferðaskipafarþega í júlí
Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað undanfarin misseri að fjölgun hefur orðið á ferðum skemmtiferðaskipa hingað til lands. Frá sjónarhóli efnahagslífs, mannlífs og náttúru þetta afar jákvæð þróun, þá ekki aðeins vegna þess að skipin bæta mikilvægri gátt við samgönguleiðir til Íslands, heldur einnig vegna þess að engum hluta ferðaþjónustu er eins vel stýrt m.t.t. álags á innviði, náttúru og menningu. -
Hallgrímur Gíslason skrifar
Samanburður á gjaldskrám nokkurra sveitarfélaga
Öldungaráð Akureyrarbæjar ákvað að bera saman gjaldskrár nokkurra valinna sveitarfélaga vegna þjónustu við eldri borgara. Starfsmaður Akureyrarbæjar fékk það verkefni að taka þær saman. Síðan tóku fulltrúar EBAK í ráðinu við, bættu við atriðum og aðlöguðu að óskum sínum. -
Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina
Eitt aðaleinkenni þjóðkirkjunnar, kirkju þjóðarinnar er hún að hún hefur þá grunnskyldu að veita kirkjulega þjónustu um allt land. Henni ber að þjóna fólki í sveit og borg, í þorpum og bæjum, þeim sem búa afskekkt og þeim sem búa þétt. Þetta er ekki einfalt hlutverk því þegar upp er staðið er það fjárhagurinn sem stýrir því hversu breið og öflug sú þjónusta er. Sóknargjöldin sem ríkið innheimtir fyrir þjóðkirkjuna hafa verið skert af hálfu ríkisins frá því í hruninu og jafnvel eitthvað fyrr. Þetta hefur gert það að verkum að erfiðara er að halda úti þjónustu safnaða og halda við kirkjubyggingum sem margar hver eru menningarleg þjóðarverðmæti. Þá hefur vígð þjónusta verið skert þar sem kirkjan hefur þurft að fara í sparnaðaraðgerðir auk þess sem fólksflutningar hafa orðið á ákveðnum svæðum. -
Gunnar Níelsson skrifar
Ísland í 80 ár! Málþing um stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi
Hömrum, Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, laugardag 4. maí 2024, kl. 14:00-17:00. AkureyrarAkademían stendur fyrir opnu málþingi í tilefni af því að á þessu ári eru 80 ár frá því að lýðveldi var stofnað á Íslandi þann 17. júní 1944. Málþinginu er ætlað að vera vettvangur fyrir samræður og skoðanaskipti fræðimanna og almennings um lýðveldisstofnunina, stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi. Hvernig hefur tekist til? Hvaða lærdóma má draga?
Mannlíf
-
Kirkjugarðar Akureyrar í rekstrar vanda og næsta skref að loka líkhúsinu
„Hvað verður um líkin?“ er spurning sem Akureyringar og nærsveitarmenn velta fyrir sér þessa dagana, en Kirkjugarðar Akureyrar sem reka líkhús og kapellu á Naustahöfða eru í rekstravanda vegna fjárskorts. Kirkjugörðunum er óheimilt að innheimta þjónustugjald vegna starfsemi líkhúsanna. Einkaaðilar gætu innheimt slíka gjöld en fáir hafa áhuga á að reka líkhús hér á Akureyri. Engin leið önnur er út úr vandanum nema sú að hætta rekstri líkhússins. Stefnir í að skellt verði í lás grípi Alþingi ekki í taumana á vorþingi og geri Kirkjugörðum heimilt að innheimta þjónustugjaldið eða leggja til fjármagn til starfseminnar. -
Fann sig í sálfræði og flýgur nú út í frekara nám
Þegar Emma var ung ætlaði hún að verða læknir eins og langafi. Í menntaskóla áttaði hún sig á því að líffræði væri alls ekki fag sem hún hafði gaman af og þá læknisfræðin ekki það sem fyrir henni lægi. Emma hafði hins vegar mjög gaman af sálfræðinni og eftir einn tímann kom kennarinn upp að Emmu, tjáði henni hversu efnileg hún væri á því sviði og fékk hana til að íhuga frekara nám í fræðunum. -
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri hjá LA
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Bergur Þór tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gengt starfinu síðustu í sex árin. -
Félagslegt húsnæði í Grímsey Ekkert til fyrirstöðu að selja
Velferðarráð Akureyrarbæjar sér ekkert því til fyrirstöðu að húsnæði í eigu bæjarins verði selt. -
25 ár frá sameiningu Einingar og Iðju
Í dag, 15. maí, eru liðin 25 ár síðan formlega var gengið frá samruna Verkalýðsfélagsins Einingar og Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Þótt þetta sameinaða félag eigi sér þannig séð ekki langa sögu stendur það á gömlum merg því félögin eiga sér hvort um sig langa og merka sögu í baráttu verkafólks fyrir réttindum sínum. Sögu Iðju má rekja allt aftur til ársins 1936 og er stofndagur félagsins talinn 29. mars það ár. Verkalýðsfélagið Eining varð til 10. febrúar 1963 með sameiningu Verkakvennafélagsins Einingar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Rætur Einingar ná þó mun lengra aftur og má segja að fyrsta fræinu hafi verið sáð árið 1894 þegar Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar, hið eldra, var stofnað.
Íþróttir
-
,,Þetta snýst þá bara um að fara rútuferð á fimmtudaginn”
Það var sannkölluð háspenna sem boðið var upp á í leik Þórs og Fjölnis í Íþróttahöllinni í kvöld. Tækist Þór að sigra væri sæti í Olis deild karla næsta keppnistímabil í höfn, færi Fjölnir með sigur þyrfti oddaleik n.k fimmtudag í Reykjavík. -
Stórleikur í Höllinni í dag!
Í dag nánar tiltekið kl 18.30 verður blásið til leiks hja Þór og Fjölni í einvígi þessara félaga um sæti i efstu deild í handbolta keppnistímabilið 2024-2025.Þór hefur tvö vinninga en Fjölnir einn. Alls þarf þrjá vinninga til að tryggja sér sæti í efstu deild svo segja má að staða Þórsara sé afar vænleg fyrir leikinn en staðan ein og sér gerir ekkert, það þarf að klára málið. -
Fjórir norðanmenn unnu brons á Íslandsmótinu í bridge.
Akureyringarnir, Frímann Stefánsson, Pétur Guðjónsson og Reynir Helgason gerðu góða ferð suður til Reykjavíkur un helgina með Mývetningnum Birni Þorláks þar sem verkefnið var að etja kappi við sterkustu lið landsins í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni. Sveitin keppti undir merki Kjöríss. -
KA vann bæjarslaginn
KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór yfirspilaði KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru því með verðskuildaða forustu í hálfleik. -
Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi. Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið. Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum.