Laugardagur 18. ágúst 2012 - 08:29
Aldrei fleiri nýnemar
Alls sóttu 1220 manns um nám við Háskólann á Akureyri í haust og fengu um 900 þeirra skólavist. Þetta er um hundrað fleiri umsóknir en í fyrra. Búist er við að um 700 nýnemar hefji nám við háskólann í næstu viku þegar nýnemavikan fer af stað en aldrei hafa fleiri nýnemar hafið nám við háskólann. Reiknað er með að heildarfjöldi nemenda við skólann verði alls 1600 og er útlit fyrir að fjarnemar verði heldur fleiri en staðarnemar.
Að sögn Dagmars Ýr Stefánsdóttur, markaðs-og kynningarstjóra HA, hefur Háskólinn á Akureyri verið leiðandi hvað fjarnám hér á landi varðar og nú er svo komið að allar greinar háskólans, utan lögfræði, eru kenndar bæði í fjar- og staðarnámi.
Spurning vikunnar
Gasgrill, það er miklu þægilegra
96%
Kolagrill, auðvitað. Þannig næst ekta grillstemning
4%
Hvorugt, ég grilla ekki.
0%
Þátttakendur: 25
Veðrið
Akureyri
2°C
Norðan
11m/s
Reykjavík
4°C
Norðan
7m/s
Ólafsfjörður
2°C
Norðaustan
3m/s
Siglufjörður
2°C
Norðan
3m/s
Víkurskarð
-1°C
Vest- norðvestan
14m/s
Öxnadalsheiði
0°C
Vestan
6m/s
Holtavörðuheiði
-1°C
Norðan
9m/s


