Grænmetisbaka, Spínat-“píramídi” og Pavlova
Harpa Ævarsdóttir er hér með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar. “Ég ætla að bjóða upp á grænmetisböku sem ég geri oft – hlutföll og innihald er þó aldrei eins hjá mér heldur aðlagað að innihaldi ísskápsins hverju sinni – hér er hins vegar grunnuppskriftin. Einnig er hér “öðruvísi” brauðréttur í klúbbinn eða kaffiboðið og að lokum hin dásamlega Pavlova sem er ólýsanlega góð,” segir Harpa.
Grænmetisbaka
1 dl. haframjöl
2 dl. hveiti
100 g smjörlíki
100 g skyr (bláa skyrið)
Hnoðið allt saman, gott að geyma svo í ísskáp í 30 – 40 mínútur (hef sjaldnast þolinmæði í það). Þrýsta deiginu í botninn og upp með hliðunum á eldföstu móti.
Uppáhaldsgrænmetið ykkar eða hvaðeina sem hugmyndaflugið leyfir - t.d.
Spergilkál
Blómkál
Sveppir
Paprikur í ýmsum litum
Laukur
Hnetur
Pasta
Léttsteikið grænmetið – og setjið ofan á deigið.
3 egg
2 ½ dl. rjómi (matreiðslurjómi)
4 dl. rifinn ostur
Salt og annað krydd að eigin vali
Allt þeytt saman og hellt yfir grænmetið. Bakan er svo bökuð í ofni við 200 ̊ C í 40 mín.
Spínat-“píramídi”
Samlokubrauð – skorpulaust
Olía
2 – 3 hvítlauksrif (því meira því betra)
1 poki ferskt spínat
100 g rjómaostur
½ bolli grænar ólífur, saxaðar
1 bolli rifinn ostur
Salt og pipar
Ferskur mozzarellaostur
Léttsteikið hvítlaukinn í olíunni, bætið spínatinu út á pönnuna og steikið áfram í smá stund. Hrærið saman rjómaostinum, ólífunum og rifna ostinum – saltið og piprið og bætið svo spínatblöndunni saman við og hrærið. Smyrjið blöndunni á brauðsneiðarnar og búið til samlokur. Skerið samlokurnar í tvo hluta – horn í horn – og raðið á bökunarplötu þannig að þær myndi “píramída” og stráið söxuðum mozzarella-osti yfir og bakið við 180 ̊ C í 10 – 15 mínútur.
Pavlova
Alls konar hnallþórur eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Fyrir stuttu uppgötvaði ég þessa dásemd sem Pavlova er og deili henni hér með ykkur.
8 eggjahvítur
500 gr. sykur
Örlítið salt
½ - 1 tsk. vanilludropar
4 msk. maizenamjöl
2 tsk. hvítvínsedik
Þeytið eggjahvíturnar með saltinu þar til þær freyða vel og bætið þá sykri smám saman út í og þeytið vel eða þar til þær verða stífar og glansandi. Bætið þá vanilludropum, maizenamjöli og hvítvínsediki varlega saman við. Setjið á bökunarplötu – mótið í samræmi við kökufatið sem þið ætlið að nota. Forhitið ofninn í 180 ̊ C en lækkið í 150 ̊ C þegar kakan fer inn í ofninn og bakið í 1 ½ klst. – slökkvið á ofninum og látið kökuna kólna í honum. Ath. hún á að vera mjúk í miðjunni.
Þeytið ½ ltr. af rjóma með smávegis af vanilludropum út í – breiðið rjómann yfir kökuna og þar ofan á setjið þið FULLT af berjum og ávöxtum (bláber, jarðarber, granatepli, mangó, kiwi, vínber....).


