Óhefðbundnar blöndur úr ódýru grænmeti

Helga Kvam tónlistarskólastjóri á Svalbarðsströnd tók áskorun frá Elísabetu Fjólu Þórhallsdóttur og hér mætt með spennandi uppskriftir í matarkrók vikunnar. "Þar sem líður að hausti þá er alltaf gott að setja ýmislegt góðgæti í krukkur til að geta notið sumarbragðsins yfir vetrarmánuðina. Ég hef verið að prófa allskyns leiðir með því að nýta það grænmeti sem hægt er að fá ódýrt núna (og ekki verra ef það er íslenskt) og búa til óhefðbundnar blöndur úr því," segir Helga.

Gulrótarchutney

500 g rifnar gulrætur

1/2 tsk. rautt chili duft

2 tsk. ferskur engifer, skorinn í þunnar ræmur (um 30 g)

2 hvítlauksgeirar skornir í þunnar ræmur eða sneiðar

8 ristaðar möndlur, skornar í þunna bita

60 g rúsínur

4 tsk. salt

360 g sykur (má vera hrásykur eða nota agave sýróp)

2/4 tsk. muldar kardimommur

1,5 bolli edik

1 bolli vatn

Gulrætur,vatn, hvítlaukur og engifer látið sjóða saman á lágum hita eða þar til vatnið hefur gufað upp, ath að mauksjóða ekki gulræturnar samt. Hrært vel í og ediki, sykur, salt, rúsínum, möndlum og kardimommum blandað saman við og soðið á lágum til meðalhita þar til þetta fer að verða þykkt. Þá er þessu skellt í sótthreinsaðar krukkur og lokunum smellt á. Tilbúið til smökkunar eftir um 2 daga en geymist vel yfir veturinn. Mjög gott með indverskum mat, eða ofnsteiktu kjöti, kexi og ostum. Hér á heimilinu er þetta borðað með hverju sem er (eða stolist í krukkuna og þetta borðað eintómt).

Tómata- og chilimauk

Einfalt og frábært með kjöti eða t.d. ofan á ristað brauð með rjómaosti.

6 tómatar (skornir í 4 bita)

1 lítill laukur (skorinn í báta)

1 rautt ferskt chili, skorið gróft (ef þið viljið hafa þetta minna sterkt þá hreinsa fræin úr)

2 hvítlauksgeirar skornir í bita

Smá biti engiferrót rifin niður

2 msk. balsamedik

50 g hrásykur (eða púðursykur, eða agave sýróp)

olívuolía 

sjávarsalt

Setjið tómatana, laukinn, chili, hvítlauk og engifer í eldfast mót. Hrærið saman balsamedikinu og góðum slurk (um 3-4 msk) af olívuolíunni. Stráið sykrinum yfir allt í mótinu og hellið svo olíunni/edikinu yfir. Notið hendurnar til að blanda þessu vel saman, stráið svo örlitlu af sjávarsalti yfir. Sett í 200° heitan ofn/180° á blæstri í um 40 mínútur, eða þar til laukurinn er farinn að brúnast vel. Tekið út og hrært vel saman, sett í krukkur. Geymist í ísskáp. Þessi uppskrift er nægileg fyrir eina krukku í góðri stærð, best er að gera ekki of mikið í einu af þessu því þetta geymist ekki lengur en nokkrar vikur í kæliskáp. Athugið að þegar þið vinnið með ferskt chili að þá er langbest að vera í hönskum því safinn úr chili-inu er ertandi.

Kúrbítsmarmelaði

Eitt sætt og gott, frábært á brauð eins og venjulegt marmelaði.

4 sítrónur

1,8 kg kúrbítur, flysjaður og skorinn í litla teninga

1,8 kg sykur

þumalsstærð af ferskri engiferrót, flysjuð og rifin

pektín/hleypir

Flysjið gula hlutann af sítrónuberkinum og setjið til hliðar, gott að skera hann í litlar ræmur. Náið öllum safanum úr sítónunum og geymið í skál, takið steinana úr. Geymið "skeljarnar" af sítrónunum. Kúrbítsteningarnir settir í pott ásamt 2 msk. af sítrónusafa á meðalhita, hrært í annað slagið eða þar til teningarnir eru orðnir hálfgegnsæir, en ekki maukaðir. Hellið öllum aukasafa af kúrbítnum.

Hrærið saman við kúrbítinn, sykrinum, sítrónuberkinum, sítrónusafanum og engifernum. Látið skeljarnar af sítrónunum liggja út í, þær gefa bragð líka. Hrærið vel og látið sjóða í um 15 mínútur og þá ætti þetta að fara að verða þykkt, hægt er að nota pektín til að hjálpa til við það. Sett í krukkur og svo borðað með bestu lyst. Bragðið verður bara betra með tímanum!

"Ég skora á Gyðu Henningsdóttur, verslunarstjóra Benneton og Levis á Akureyri að koma með uppskriftir í næsta matarkrók."