Vinsælt gulrótamarmelaði og bláberjabaka

Elísabet Fjóla Þórhallsdóttir á Svalbarðseyri tók áskorun frá Önnu Sólveigu Jónsdóttur nágrannakonu sinni á Svalbarði og er hér mætt með grinilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar.

Gulrótamarmelaði

500+ g gulrætur
500 g aprikósur
2-3 appelsínur
1 lítri vatn (heitt)

Aprikósurnar lagðar í bleyti í vatninu í u.þ.b. klukkustund. Aprikósurnar, appelsínur og gulrætur hakkaðar og svo viktaðar, allt sett í pott og soðið við hægan hita í 2-3 mín . Sykur settur samanvið (sama þyngd og aprikósur, appelsínur og gulrætur viktuðust). Soðið áfram við hægan hita í 20 mín., hrærið í en ekki stöðugt. Sett heitt í krukkurnar og lokið strax, þá á ekki að þurfa að bæta neinum auka rotvarnarefnum í. Sykur er rotvarnarefni og er því varasamt að minnka sykurmagnið í sultuuppskriftum. Það er sama hversu mikið ég geri af þessu marmelaði það klárast alltaf. 

Bláberjabaka

Botn
3 dl. hveiti
2 msk. sykur
100 gr smjör
1 lítið egg
100 gr marsipan
unnið vel saman og sett í smurt mót og látið koma upp með börmunum á forminu.


Sett ofaná
500 g bláber
2 dl. sykur
1 msk. kartöflumjöl
1 tsk. kanel

blandað saman og sett í botnin.
Bakað við 200°c í 30-40 mín. Takið úr ofninum
 2-3 eggjahvítur
1 ½ flórsykur
Þeytt vel saman, sett ofaná og bakað áfram í 10-15 mín.
Það er hægt að nota í stað bláberjana, jarðaber, rabarbara eða eithvað annað sem ykkur líst vel á, það er einnig mjög gott að skella bökunni í frost þegar hún er búin að bakast í fyrra skiptið,  grípa svo til hennar þegar ykkur hentar, setja þá stífþeyttu eggjahvíturnar ofaná og klára baksturinn. Berið fram með rjóma, bara æðislegt. 

"Ég skora á Helgu Kvam, tónlistaskólastjóra á Svalbarðsströnd, að senda inn uppskriftir í næsta matarkrók Vikudags."