Tortillu-snittur og nammi með kaffinu

Fyrir verslunarmannahelgina skoraði hún Þórhalla Karlsdóttir skoraði á hana Boggu systur sína,  Valborgu Karlsdóttur á Svalbarðseyri, að senda inn uppskriftir í martarkrókinn. Valborg þót þeirri áskorun og kemur hér með uppskriftir af  tortillu-snittum annars vegar og góðgæti með kaffinu hins vegar.  En fyrst eru það snitturnar, enda er góðgætið gott með kaffinu á eftir matnum!  

Tortillu-snittur

4-5 neiðar skinka söxuð

hálf rauð paprika söxuð

chili duft 2 teskeiðar

250 gr rjómaostur mjúkur

2 vorlaukar saxaður

1 pakki mjúkar tortillur

Allt hrært vel saman í hrærivél. Smurt á tortillukökurna, þeim rúllað upp og skornar niður.

Gott að geyma þær í kæli yfir nótt í rúllunum áður en þær eru skornar niður.

Ef vorlaukur fæst ekki er gott að nota 3 msk blaðlauk + 3 msk rauðlauk.

Mjög gott nammi með kaffinu

250 gr brætt smjör

120 gr dökkur púðursykur

360 gr smábrytjaðar döðlur

ca. 6 bollar rice crispis

Smjör og púðursykur sett saman í pott og brætt saman

döðlurnar settar útí og þetta látið malla smá

potturinn tekinn af hellunni og rice crispið sett saman við

Sett í eldfastmót frekar þunnt

Bræðið síðan 300 - 400 gr suðusúkulaði og sett yfir nammið

látið í kæli í 2 - 3 tíma skerið svo niður gott að setja í box til að geyma í frysti

  

Verði ykkur að góðu og svo vil ég skora á hana Önnu Sólveigu Jónsdóttur á Svalbarðseyri að koma með næsta matarkrók.