Soðinn lax og sykraður silungur

Anna Sigríður Pétursdóttir garðyrkjubóndi á Brúnalaug tók áskorun Margrétar Aradóttur kunningjakonu sinnar og mætir hér með sumarlegar uppskriftir héðan og þaðan. Gefum henni orðið: "Þar sem nú er runnin upp tími lax og silungsveiða finnst mér gráupplagt að koma þeim að hér. Einfalt, þægilegt, hollt og gott."

Soðinn nýveiddur lax með graslaukssósu.

Lítill lax

Vatn

1 sítróna

Saltkorn á hnífsoddi

Kreystið safann úr hálfri sítrónu í vatnið ( ég sýð alltaf fisk í afar litlu vatni á pönnu ) , salt út í og sjóðið svo hæfilega þverskorinn laxinn í rétt rúmlega 7 mínótur.

Graslaukssósa.

Mæjónesi og sýrðum rjóma í jöfnum hlutföllum blandað saman, ásamt  helling af graslauki úr garðinum, ferskur og fínn.

Laxinn ber ég á borð með soðnum kartöflum, graslaukssósu,sítrónusneiðum, tómötum og agúrkum.

Sykursteiktur silungur.

Gott er að nota smásilung. Flakaðan og roðflettan.

Setjið sykur í skál og salt ( líkt og væri verið að setja salt í rasp) veltið silungnum upp úr salt/sykur blöndunni. Steikið smá stund í íslensku smjöri, setjið lítlsháttar vatn á eftir steikingunni og sjóðið í örfáar mínótur. Borið á borð með kartöflum, nýssoðnum.

Salatað mitt.

1 gul paprika

1 rauð paprika

1 orange.

½ agúrka

Smá arfi ( má sleppa )

Vínber

Allt skorið pent niður og blandað saman. Þetta er gott með hvers kyns mat, og eitt og sér.

Paprikusósa.

1 græn paprika

1 rauð paprika

1 stór laukur

½  pakki púrrulaukssúpa

Vatn.

Rjómi

Smjör til steikingar.

Mýkið grænmetið upp úr smjörinu,  lagið þykka súpu, setjið grænmetið út í og rjóma að lokum. Frábær sósa með hverskyns kjöti og soðnum eða steiktum fiski.

Ísinn minn.

½ lítri rjómi

2 egg

4 msk. sykur

½ glas vanilludropar

Lítið toblreone

Rjóminn er þeyttur , sykurinn og eggin þeytt saman.Rjóma og eggjahrærunni blandað út í ásamt vanillubragðinu og stórt skornu niður

Tobleron. Fryst og gjarnan borðað með niðursneiddum jarðaberjum og perum.

Að lokum soldið spes.

Lagið vöffludeig, en minnkið sykurskammtinn verulega. Steikið vöfflurnar mjög vel. gerið rækjusalat. Setjið svo rækjusalatið á vöfflurnar og bingó. Mjög gott með kaffinu.

Ég skora svo á hana elstu dóttur mína Jónínu Gísladóttur. Hún eldar afar girnilegan og gómsætan mat, að ekki sé nú talað um terturnar hennar. Og allt þetta gerir hún af hjartans list, enda fer enginn svangur frá hennar borðum.