Skötuselur, súkkulaðikaka og heitur réttur
Djúpsteiktur skötuselur
800 gr skötuselur, 2 dsl appelsínuþykkni-1 dsl sojasósa og 4 kúfaðar matskeiðar af púðusykri. Skerið skötuselinn í frekar litla bita og látið liggja í marineringunni í svona 2-6 klst. Setjið svo brauðrasp og sesamfræ til helminga, setjið fiskinn í eggjablöndu og út í brauðraspið og sesamfræin og djúpsteikið þangað til það fer að fá smá gullinn lit...en annars er það bara smekksatriði..ég ber framm með þessu annaðhvort sæta chilisósu eða graflaxsósu og salat og ristað brau. Opg þetta er rosa góður réttur J
Ekta hveitilaus súkkulaðikaka
8 egg
500 gr suðusúkkula'I (konsum)
200 gr smjör
200 gr sykur
Hrærið egg og sykur vel saman, bræðið súkkulaði og smjör saman við vægann hita í potti, hellið súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna og hrærið á meðan..setjið í lausbotnaspringform og bakið í sirka 30 mín á 170 gr hita allt eftir smekk. Kælið svo kökuna og setjið kremið yfir 200 gr súkkulaði 2 msk síróp og 100 gr smjör allt sett í pott og mallað saman og hellt yfir kökuna kælið og skerið 1-2 bakka af jarðaberum og setjið yfir kökuna. Berist framm með vanilluís eða þeyttum rjóma J
Ostakaka
400 gr rjómaostur
150 gr flórsykur
½ lítri rjómi
Botninn 1 pakki makkarónukökur frá Kristjánsbakarí
10-15 ritz kex
slatti af daim-súkkulaði
Sirka 100 gr smjör
Myljið makkarónurnar og ritzkexið saman og bræðið smjörið og blandið öllu saman. Setjið í fat og þrýstið niður
í botninn og kælið
Vinnið vel saman rjómasotinn og flórsykurinn, þeytið rjómann og blandið vel saman. Hellið næst yfir botninn og inn í frysti í svona
klukkutíma.
200 gr súkkulaði og sirka 70 gr smjör brætt saman og ein dós af sýrðum rjóma blandað saman við og hellt yfir kökuna..ég set oft stundum snikers út í þessa blöndu , það er rosa gott!!....Svo brytja ég daim súkkulaði bara ve laf því og set slatta yfir súkkulaðikremið og inn í frost aftur. Hægt er að geyma þessa köku í frosti og taka hana bara út ef maður á von á gestum. Mér finnst hún best ef hún er vel köld.
Heitur réttur
Fransbrauð eftir smekk
I camembertostur
¼ lítri rjómi
2 bréf reykt bónusskinka
1 dós gular baunir frá græna risanum
Rífið brauðið og setjið á botninn, brytjið skinkuna fínt niður og blandið maísbaununum saman við og yfir brauðið. Næst skal bræða rjómann og camenbertinn saman og hella svo yfir brauðið. Loks setjum við venjulega góða gouda ostinn yfir og þá fer þetta inn í ofn í svona 30 mín við 200 gr
Ég nota oftast ekki uppskriftir svo ég átti í pínu erfiðleikum með að gefa nákvæmlega uppskrift, en fólk lagar þær bara að sínum þörfum! Ég vil endilega skora á Aðalheiði Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðing, því hún býr til æðislegan mat og það er alltaf svo spennandi að koma í mat til hennar! Verði ykkur að góðu !
