Silungur í sparifötum, ýsupottréttur og ostakaka

Vigdís Sævaldsdóttir tók áskorun dóttur sinnar, Nínu Hrannar Gunnarsdóttur og er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar.

Silungur í sparifötum

2 silungsflök

2 msk. smjör brætt

1 tsk. salt

1 tsk. svartur pipar

2 eggjahvítur

1 bolli mayonnes

Krydd eftir smekk

Sítrónusafi

Söxuð steinselja

¾ bolli rifinn ostur

Silungsflökin beinhreinsuð, roðflett ef þið viljið, ekki nauðsynlegt.  Smyrjið eldfast fat með olíu og kryddið í botninn.  Leggið flökin í fatið, kryddið og penslið þau með olíu.  Setjið ofninn á grill og fatið inn þegar hann er orðinn heitur.  Grillið í 10-12 mín.  Þeytið eggjahvíturnar og blandið saman við mayonnesið, blandið síðan kryddinu, sítrónusafanum, steinseljunni og ostinum saman við, smyrjið yfir flökin og grillið áfram í 2-4 mínútur.  Berið fram með grænmeti og kartöflum eða hrísgrjónum.

Ýsupottréttur

800 g ýsuflök

1 laukur

1 paprika

1 epli

4 gulrætur

1 tsk. karrí

100 g rjómaostur

1 dl rjómi

1 tsk. salt

1 tsk. season all

½ tsk. sítrónupipar

Skerið laukinn í sneiðar, paprikuna í strimla og eplin og gulræturnar í bita.  Brúnið grænmetið á pönnu,  bætið eplunum í og látið krauma smástund.  Stráið karríinu yfir og látið rjómaostinn bráðna á pönnunni og hellið rjómanum yfir.  Skerið fiskinn í litla bita og stráið season all yfir, gott að láta fiskinn bíða smástund með kryddinu, setjið fiskinn ofan á grænmetið á pönnunni og stráið sítrónupipar yfir.  Látið sjóða við vægan hita í ca. 5-7 mín.

Báðir þessir fiskréttir eru svo meinhollir að alveg er óhætt að  fá sér væna sneið af þessari Baileys ostatertu á eftir.

Baileys ostaterta

1 pk. Luu kryddkex

100 g smjör brætt

Kexið mulið og smjörinu blandað saman við, deiginu þrýst í botninn á klemmuformi.

Fylling

20 stk makkarónukökur

1/4 dl kaffi

¾ dl baileys

Brjótið kökurnar niður í skál hellið vökvanum yfir og setjið í formið.

Ostafylling

350 g rjómaostur

2 stk eggjarauður

40 g sykur

1 ½ tsk vanilludropar

2 msk baileys

5 blöð matarlím

2 dl rjómi

Vinnið ostinn mjúkan, þeytið sykur og eggjarauður saman og blandið saman við ostinn.  Mýkið matarlímið í köldu vatni og hitið síðan vanilludropana og baileysinn, jafnvel pínulítið kaffi og bræðið matarlímið í því, blandið því samann við ostahræruna.  Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleikju.  Hellið yfir botninn og kælið minnst í 4 klst.

"Ég ætla að skora á hana mágkonu mína Ástu Einarsdóttur kennara við Dalvíkurskóla að koma með uppskriftir í næsta blað. Ég veit að hún lumar á mörgum góðum, jafnvel óvenjulegum, en örugglega hollum uppskriftum.