Pestókjúklingur og Kalla kaka

Jóninna Karlsdóttir tók áskorun Ástu Einarsdóttur er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar.

Pestókjúkklingur

4 kjúkklingabringur

1 krukka rautt pestó

1 kúrbítur

1 púrrulaukur

5 sveppir

kjúkklingakrydd

Skerið grænmetið og setjið í eldfast mót skerið kjúklingin í bita kryddið með kjúkklingakryddi skellið honum svo í skál ásamt pestóinu og blandið vel síðan sett yfir grænmetið og bakað í ofni við 200 gr í sirka 45 mín. Borið framm með fersku salati hrísgrjónum og fetaosti.

Kalla kaka

4 egg

1 dl sykur

2 dl hveiti

200 g smjör

150 g hvítt súkkulaði

Þeytið egg og sykur saman, bræðið smjörið og setjið súkkulaðið saman við þegar það er aðeins farið að kólna, blandið saman við eggjablönduna og hveitið síðast bakað í um 20 mín. við 175 gráður. Best er kakan volg með jarðabejum bláberjum örlitlu herslihnetusírópi og vanelluís.

"Ég skora svo á vinkonu mína Þórhöllu Karlsdóttur á Dalvík að koma með uppskriftir í næsta matarkrók."