Nautahakk í ofni, bananabrauð og brownies

Anna Sólveig Jónsdóttir á Svalbarði á Svalbarðsströnd tók áskorun Valborgar Karlsdóttur og er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar.  

Einfalt og þægilegt - nautahakk í ofni

500 g nautahakk

 ½  bolli haframjöl

 ½  bolli tómatsósa

¼  laukur smátt saxaður  (má sleppa)

1 egg 

1  tsk. salt

tæplega  ½  tsk. pipar

Öllu blandað saman,  sett í eldfastmót og ostur yfir.

Bakað í u.þ.b. 30 mín. við 200 °C

Með þessu er gott að bera fram heitar eða kaldar sósur, kartöflur, hrásalat og /eða soðið grænmeti,  allt eftir smekk hvers og eins.

Bananabrauð

3  bananar (ljótir)

1 bolli hveiti

½ bolli heilhveiti

½ bolli haframjöl

1 egg

1 tsk. matarsóti

5 döðlur  skornar í bita.

Bananarnir stappaðir og settir í skál,  öllu blandað saman með sleif.

Bakað við 200 °C í  u.þ.b.  45 mín.

Brownies

100 g suðusúkkulaði

100 g smjör

Tvö  egg

175 g sykur

120 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

75 g möndluflögur (má sleppa)

Brjótið súkkulaðið niður og bræðið með smjörinu.  Þeytið egg og sykur saman.  Blandið þurrefnum út í eggjamassann og því næst súkkulaðinu+smjörinu og að lokum 2/3 hluta af möndlum.

Setjið deigið í ofnskúffu (20x25 cm) stráið því sem eftir er af möndlum yfir og bakið við 200 °C  í u.þ.b. 20 mín. Eftir að kakan hefur kólnað  örlítið er hún skorin í ferninga, gott er að frysta og eiga tilbúið þegar á þarf að halda eða bera fram volga með rjóma eða ís.

Anna Sólveig skorar á Elísabetu Fjólu Þórhallsdóttur, nágrannakonu sína á Svalbarðseyri,  að senda  inn uppskriftir í næsta matarkrók Vikudags.