Lambalæri og Baileys - ostakaka

Þar sem sumarið er framundan býður Aðalheiður Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur  m.a. upp á holugrillað lambalæri en það er alveg ómissandi að gera það nokkrum sinnum yfir sumartímann. Sósan og grillaða grænmetið fer einnig vel með lærinu en ostakakan er löngu orðin klassísk í veislum hjá henni:

Holugrillað lambalæri

lambalæri

krydd eftir smekk

Ef grillað er eitt læri er grafin passlega víð hola en ef margir eru í mat og þarf fleiri læri getur verið gott að úrbeina þau til að minnka umfang holunnar en þá þarf líka að stytta eldunartímann. Holan þarf að vera u.þ.b. 40 cm djúp, passið að torfan ofanaf sé heilleg. Álpappír er settur í botninn á holunni og látið vel af kolum (þekja þarf botninn alveg með kolum og meira til). Lærið er kryddað með uppáháldskryddinu og gaman er að nota það sem nágrennið býður upp á hverju sinni eins og birkilauf, ber og berjalyng. Einnig er gott að stinga hvítlauksgeirum í vöðvana. Lærið er vafið vel inn í álpappír og lagt ofan á kolin þegar þau eru tilbúin. Þekja þarf opið á holunni t.d. með spýtum og torfusneplinum, gæta þarf þess að skilja eftir smá rifu til öndunar. Eftir um 45 mín er lærinu snúið við og haft annan eins tíma, þá er álið opnað aðeins án þess að taka lærið upp úr og látið vera smá stund til viðbótar til að fá skorpu.

Meðlæti
sætar/forsoðnar kartöflur

paprikur, rauðar/gular

kúrbítur

laukur

litlir tómatar

hvítlauksgeirar

grillolía/matarolía

salt

grófmalaður pipar

Grænmetið er skorið í stóra bita nema hvítlaukurinn sem er hafður í hýðinu í heilum geirum. Skvettu af matarolíu hellt yfir og kryddað, gott er að blanda þessu saman í plastpoka. Sett á álbakka eða Weber grillpönnu og grænmetið hitað á útigilli, athugið að tómatarnir þurfa styttri tíma en hitt grænmetið. Passar vel með öllum mat.

Sósa
1 laukur

1 askja ferskir sveppir

smjör til steikingar

¼ l rjómi og/eða piparostur

soyasósa (byrja með u.þ.b. 2 tsk)

salt

grófmalaður pipar

grænmetiskraftur

maizena sósujafnari, má sleppa

Sneiðið laukinn og sveppina og svissið í smjörinu á pönnu. Bætið rjómanum, soyasósunni og kryddinu út í, smakkið til, auðvelt að bæta rjóma í til að stækka uppskriftina. Þegar suðan er komin upp er þykkt með sósujafnara ef þarf. Þeir sem vilja geta bætt sósulit út í. Þessi sósa er góð með ýmsum réttum en algjörlega ómissandi með holugrillaða lambalærinu.   

Baileys -ostakaka

Botn:

1 pk Homeblest kex

110 g smjör eða minna

Fylling:

400-500 g rjómaostur

170 g flórsykur

1 stórt Daim

2 lítil Toblerone

60 cl Baileys (eða annar rjómalíkjör)

5 blöð matarlím

½ l linþeyttur rjómi

Ofaná:

2 dl þeyttur rjómi

1 eggjarauða

60 g suðusúkkulaði

Myljið kexið í matvinnsluvél/mixara og bræðið smjörið, setjið saman og í botninn á fati. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Myljið sælgætið í matvinnsluvél/mixara. Hrærið rjómaostinn og flórsykurinn saman til stofuhita. Setjið nammið saman við rjómaostinn. Bræðið matarlímið og kælið með Baileysnum og hellið út í soppuna í mjórri bunu og hrærið á meðan. Hrærið að lokum rjómanum varlega saman við með sleikju og hellið yfir botninn.

Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og hrærið eggjarauðunni samanvið. Setjið þá rjómann út í og hrærið saman. Setjið ofaná ostakökuna.

Í næsta matarkrók vildi ég gjarnan fá Jónínu Pálsdóttur hjúkrunarfræðing á barnadeild FSA en úr hennar eldhúsi kemur bara gott og girnilegt. Verði ykkur að góðu.