Kjúklingabringur, skyrterta og ísterta

Þórhalla Karlsdóttir á Dalvík tók áskorun vinkonu sinnar Jóninnu Karlsdóttur með þökkum og segir jafnframt að ekki sé hægt annað en að vera með og hafa gaman af. "Þessi réttur er mjög fljótlegur og þægilegt að búa hann til. Það er hægt að bæta meiru í hann að vild og leika sér eins og hverjum og einum hentar, spurningin er hvað er til í ísskápnum í það skiptið sem rétturinn er búinn til. Einnig er hann góður upphitaður með pasta, hvítlauksbrauði eða hrísgrjónum," segir Þórhalla.

Kjúklingabringur með mangó

Handa fjórum

400 gr. Kjúklingabringur (án hams)

½ tsk. salt

½ tsk. pipar

2 msk. Matarolía

3 hvítlauksrif

1 msk. Karrí

½ krukka mangó chutney sweet (100g)

2-2½ dl matreiðslurjómi eða mjólk (má vera mjólk og rómi til helminga)

Aðferð:

  1. Hreinsið og þerrið bringurnar og skerið þær í fingurþykkar sneiðar. Kryddið með saltinu og piparnum.
  2. Snöggsteikið sneiðarnar í olíu við snarpan hita - gætið þess að harðsteikja þær ekki.
  3. Saxið hvítlauksrifin smátt og mýkið í örlítilli olíu - gætið þess að brenna þau ekki.
  4. Bætið karríinu, mangó chutneyinu og rjómanum/mjólkinni/rjómablandinu á pönnuna og látið sjóða við vægan hita í u.þ.b. 3 mín.
  5. Þetta er síðan borðið fram með hrísgrjónum, grænmetissalati, snittubrauði og jafnvel soðnum gullrótum.

Gott er að setja saman við réttin púrrulauk, lauk, sveppi, papriku og það sem manni dettur í hug gerir réttin bara betri þannig ef það er nóg gums með.

Eitthvað sætt verður að koma á eftir kjúklingaréttinum og datt mér í hug að deila með ykkur tveimur einföldum eftirréttum

Skyrterta

½ kg jarðaberjaskyr

1. pakki Homeblest súkkulaðikex ( má í raun vera hvað sem er kanilkexið frá Lu er til

      dæmis magnað og mjög gott)

2 msk. smjörlíki ( þarf ekki ef kanilkexið er notað)

1 pakki matarlím (ca. 4 blöð)

2 stk. egg

2 dl sykur

¼ l þeyttur rjómi

1 pakki jarðaberjahlaup eða 1 krukka af jarðaberjasultu

Aðferð:

Þeyta egg og sykur þar til að það verður ljóst og létt. Hræra svo jarðaberjaskyrinu saman við og þeyta vel. Klippa matarlím í litla bita í skál og láta vatn fljóta yfir. Bræða matarlímið og hella svo rólega út í skyrblönduna og hræra stöðugt. Þeyttur rjómi látinn út í þetta ( hræra með sleif). Bræðið smjörlíki og myljið kexið út í og hræra saman og setja í botninn. Sett í kæli meðan hlaupið er gert og hellt svo rólega yfir. Það má líka setja sultu yfir þá er þetta látið í kæli og látið stífna og svo er sultan smurð á.

Þetta er afar einföld og góður grunnur af skyrtertu, auðvitað má nota alls konar skyr og þá breytist bara það sem sett er ofan á hana eftir því. Einnig er líka gott að nota vanilluskyr og setja ferska ávexti ofaná áður en tertan er borin fram.

Ískaka

4 stk. eggjarauður

1 stk egg

100 g sykur

5 dl rjómi

2 stk. fyllt súkkulaði (td. Karmellu)

ca. 12 kökur af Hobnobs með súkkulaði (blár pakki)

Aðferð:

  1. Þeytið saman egg, eggjarauður og sykur.
  2. Blandið þeyttum rjóma saman við.
  3. Saxið niður súkkulaði og blandið saman með sleikju.
  4. Myljið kexið og setjið í lausbotna kökuform og setjið ísblönduna ofan á.
  5. Frystið

Það er mjög gott að hafa mars-íssósu og fersk jarðaber/bláber með. Einnig er hægt að leika sér að innihaldinu en grunnurinn er góður. Til að mynda er gott að setja bounty súkkulaði, súkkulaðispænir, mars, kit kat og fleira góðgæti allt eftir því hvað hverjum finnst gott.

"Ég vona að bragðlaukarnir hjá einhverjum kvikni við þennan lestur. Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu.  Ég skora á systur mína á Svalbarðseyri, Valborgu Karlsdóttur, (Boggu) að koma með einhverja ljúffenga uppskrift í næsta blað."