Íslenska lambalærið er frábært á grillið

Ásta Stefánsdóttir tók áskorun frá systur sinni Svölu og er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar. Ásta segir að íslenska lambakjötið sé frábært á grillið og sérstaklega heil læri.

Brekkutraðarbláberjalæri

½ laukur, saxaður

2 bollar bláber

1 ½ tsk. salt

3-4 tsk. rósmarín

1 tsk. hvítur pipar

sletta olía

Öllu blandað saman og blöndunni makað á kjötið og það síðan sett í plastpoka. Látið blönduna liggja á, í hálfan til einn sólarhring. Hafið lærið í stofuhita góðan tíma fyrir grillun (eldun), gott að nudda lærið með jukkinu á. Lærið vafið í álpappír og grillað í ca. klukkutíma, gott að snúa á kortersfresti.

Af þessu læri kemur skemmtilegt villibráðarbragð.

Chillisultulæri a la Brekkutröð

1 dós. tómatpúrra

2 msk. dijon sinnep

2-3 msk. balsamedik

3 msk. hunang

1 msk. lamb islandia ( krydd frá pottagöldrum)

7 hvítlauksgeirar

½ krukka sólberja/chillisultan mín

sletta olía

sletta rauðvín

Meðhöndlað eins og bláberjalærið.

Íslenskar kartöflur eru mjög góðar, hér eru tvær einfaldar uppskriftir, sem geta ekki klikkað.

Ótrúlega þægileg og góð uppskrift af kartöflum

Kartöflur skornar í tvennt og raðað með sárið upp, penslaðar með olíu og kryddaðar með salti og jafnvel svörtum pipar, settar í 200°c heitan ofn í 20-30- mín. Þarf ekki að hræra í.

Önnur einföld og góð uppskrift af kartöflum

Kartöflur skornar í báta, olíu helt yfir og þær saltaðar, síðan krydda ég þær með ýmist timían eða rósmarín, fer eftir aðalréttinum í það skiptið. Blanda kartöflum og kryddi vel saman, set á bökunarplötu í 200°c heitan ofn í 45 - 60 mín eftir magni, gott að hræra í tvisvar til þrisvar sinnum.

Síðan eru það berin okkar sem víða er hægt að finna bæði í viltri náttúru og í görðunum okkar, þarna eru endalausir möguleikar í matar og sultugerð og einnig í bakstri.

Bláberjabaka

2 perur

1 epli

1 bolli bláber

Brytjað og sett í eldfast mót.

150 gr. smjörlíki

1 bolli sykur eða rúmlega ½ dl. agave sýróp

½ bolli haframjöl

1 bolli hveiti

Hnoðað saman og sett ofan á.

Bakað við 180 °C hita í ca. 30 mínútur

Hægt er að nota ýmis ber, ávexti og súkkulaði í þessa uppskrift og hún er dásamleg með ís eða rjóma.

Meira af berjum. Er með sólberjarunna í garðinum mínum og þeir gefa svo mikið af sér að ég varð að finna upp á einhverju öðru en líkjör og sólberjasultu til að nýta berin. Hef notað þessar mikið með í jólapakkann, þær eru sérstaklega góðar með brauði og ostum og frábærar með villibráð.

Sólberja/chillisulta

4 stk. chillipipar rauður

3 stk. paprika

Maukað í mulinex

1 ½  bolli sólber

5 ½  bolli sykur

1 ½  bolli borðedik

3 tsk. hleypir

Sjóðið í 10 mínútur, síðan er hleypir settur út í og soðið í 3-4 mínútur. Látið heitt í krukkur.

Sólberja/plómusulta

5 plómur

2 bollar sólber

1 epli

2 stk. chillipipar grænir

Mixað í mulinex

5 bollar sykur

1 ½  bolli borðedik

Soðið í 10 -15 mínútur

3 tsk. hleypir sett út í og soðið í 3 - 4 mínútur. Látið heitt í krukkur.

"Mig langar að hrósa ritstjórn Vikudags fyrir að hafa Matarkrókinn í blaðinu, margt mjög fjölbreytt og spennandi hefur litið þar dagsins ljós. Ég ætla að skora á Margréti B. Aradóttur vinkonu mína að koma með uppskriftir í næstu viku og verður spennandi að sjá hvað hún býður okkur upp á."