Grillaðar kjúklingabringur, saltfiskréttur og súkkulaðikaka

Margrét Aradóttir tók áskorun Ástu Stefánsdóttur vinkonu sinnar og er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar.

Grillaðar hunangslegnar kjúklingabringur

800 gr. kjúklingabringur

½ dl. olía

2 msk. hunang

2 msk. sojasósa

1 saxað chilialdin (má sleppa )

3 msk. sætt sinnep

Blandið olíu, hunangi, sojasósu og sinnepi  vel saman og kryddið með salti og pipar.  Þeir sem vilja setja saxað chili saman við. Kjúklingabringurnar eru settar  í löginn og látnar liggja í u.þ.b  eina klukkustundir.  Síðan eru þær grillaðar við meðalháan hita í 7 - 10 mín. á hvorri hliði.  Passið að pensla grillgrindina með olíu, þar sem það er hunang í marineringunni á kjötið það til að festast  á grindinni.

Borið fram með blönduðu salati og hrísgrjónum eða góðu brauði. Einnig er köld hvítlaukssósa góð með.

Salatsósa

½ rauðlaukur

2 tómatar

Nokkur  basilikublöð

Safi úr ½ sítrónu

1 dl. góð olía

salt

Rauðaukurinn, nokkur basilikublöð og tómatarnir saxaðir smátt, sítrónusafa hellt yfir ásamt olíunni og saltað að lokum með grófu Maldon salti.

Þetta er fyrirtaks sósa á grænt salat eða hverskonar salatblöndur.  Ef olían er minnkuð og fleiri tómatar notaðir er þetta orðið að góðri salsasósu, ég tala nú ekki um ef að settur er saxaður chili út í líka.

Saltfiskréttur ættaður frá Miðjarðarhafinu

6-800 gr. útvatnaðir, roð- og beinlausir saltfiskbitar

6 msk. ólífuolía

2 rauðlaukar, saxaðir

3-4 hvítlauksgeirar, saxaðir eða pressaðir

4-5 vel þroskaðir tómatar, fræhreinsaðir og saxaðir fremur smátt

1 rauð paprika, fræhreinsuð og söxuð smátt

1 fremur milt chilialdin, fræhreinsað og saxað smátt

10-12 steinlausar ólífur, saxaðar fremur smátt

200 ml. Rauðvín

salt

svartur pipar

½ sítróna

3 msk. hveiti

2 msk. söxuð steinselja

Helmingurinn af olíunni er hitaður á pönnu og laukurinn látinn krauma í henni við meðalhita í nokkrar mínútur.  Þá er hvítlauk, tómötum , papriku, ólífum og chili bætt á pönnuna og látið krauma í 2-3 mínútur.  Því næst er rauðvíninu bætt út í, kryddað með salti og pipar og þetta látið malla í um 20 mínútur við hægan hita.  Ef uppgufun er mikil má bæta vatni eða meira víni á pönnuna.  Á annari pönnu er afgangurinn af olíunni hitaður.  Fiskinum er velt upp úr hveitinu og hann snöggsteiktur á vel heitri pönnunni  í eina til tvær mínútur á hvorri hlið.  Þá er hitinn lækkaður og  fiskurinn steiktur áfram þar til hann er eldaður í gegn.  Fiskurinn er síðan settur á fat og sósunni, sem hefur verið smökkuð til með sítrónusafa, salti og pipar ef þarf, er hellt yfir.  Steinseljunni er svo stráð yfir áður en fiskurinn er borinn fram, til dæmis með soðnum kartöflum og grænu salati.

Uppáhalds súkkulaðikakan

200 gr. dökkt súkkulaði  eða til helminga rjómasúkkulaði og suðusúkkulaði eftir smekk

200 gr. smjör

60 gr. sykur

60 gr. flórsykur

5 egg

40 gr. kartöflumjöl

Hitið ofninn  í 180°C. Og setjið bökunarpappír innan í 20-22 cm. smelluform.

Bræðið smjör og súkkulaði í vatnsbaði í frekar stórri skál.  Passið að blandan verði ekki of heit.  Þegar allt er orðið bráðið er báðum sykurtegundunum blandað saman við og síðan eggjunum, einu í einu, þetta má gera með handpísk.  Að síðustu er kartöflumjölinu hrært vel saman við.  Hellið deiginu í formið og bakið kökuna í 20-25 mín. eftir því hvað þið viljið hafa hana blauta í miðjunni. Kakan er síðan borin fram með sýrðum rjóma fyrir þá sem það vilja en í minni fjölskyldu er vinsælla að nota þeyttan rjóma eða vanilluís.

"Ég ætla að skora á Önnu Sigríði Pétursdóttur garðyrkjubónda á Brúnalaug.  Ég veit af eigin raun að hún er snillingur í eldhúsinu og  efast ekki um að hún komi með spennandi og góðar uppskriftir í Matarkrókinn."