Fimmtudagur 17. september 2009 - 14:26
Grænmetissúpa með grófu brauði og bökuð epli
Ásta Einarsdóttir kennari við Dalvíkurskóla tók áskorun Vigdísar Sævaldsdóttur og er hér mætt með girnilegar
uppskriftir í matarkrók vikunnar.
Grænmetissúpa
250 gr nautahakk
1 laukur
1 blaðlaukur 3 gulrætur 2 sellerístilkar 3 tómatar 1 1/2 l kjötsoð (vatn+teningur) 2 tsk. ítölsk kryddblanda salt og pipar Brúnið kjötið í lítilli olíu í potti Sneiðið grænmetið og steikið með kjötinu. Bætið vatninu (soðinu) í pottinn og kryddið. Sjóðið í 10 - 15 mínútur. Gróft brauð 2-3 dl volgt vatn 1 dl súrmjólk 5 tsk. ger 1-2 tsk. sykur eða hunang 2 tsk salt 1 dl matarolía ca. 12 dl hveiti 1 1/2 -2 dl blanda af korni að eigin vali 2-3 marðar soðnar kartöflur. Sett saman í þessarri röð. Hnoðað mjög vel. Látið hefast þar til degið hefur tvöfaldast að stærð. Hnoðað aftur, mótuð brauð sem eiga að lyfta sér vel áður en þau fara í ofninn. Vinnslutími ca. 15 mín. Hefing 1 35-40 mín. Hefing 2 ca.15 - 20 mín. Bakast við 200° í 40 mín. Bökuð epli Á meðan súpan er borðuð eru epli bökuð í ofni. Marengsepli 4 stór epli (súr) 3 msk kanilsykur 2 msk smjör Marengs 100 gr(1 1/2 dl)sykur 2 eggjahvítur möndlur ef vill Kjarnhreinsið eplin og skerið efsta hlutann af. Setjið í eldfast fat. Stráið kanilsykri yfir eplin, smá smjörklípu á hvert epli og síðan inn í ofn (200°). Eftir ca 10 mín er stífþeyttur marengs settur ofan á hvert epli. Bakað áfram þar til marengsinn hefur tekið lit. Gott að hafa ís eða þeyttan rjóma með eplunum. "Verði ykkur að góðu. Ég skora á Jóninnu Karlsdóttur, sem ég veit að er snilldarkokkur, að leggja til uppskriftir í næsta matarkrók."Veðrið
Akureyri
0°C
Vest- norðvestan
3m/s
Reykjavík
4°C
Norðvestan
3m/s
Ólafsfjörður
-1°C
Suðvestan
3m/s
Siglufjörður
-1°C
Suðvestan
2m/s
Víkurskarð
-2°C
Norðvestan
4m/s
Öxnadalsheiði
-3°C
Norðaustan
2m/s
Holtavörðuheiði
0°C
Norð- norðvestan
3m/s
