Gráðostafylltar kjúklingabringur og kanil ostakaka
Gráðostafylltar kjúklingabringur
4 kjúklingabringur
¾ geiri gráðostur
Kjúklingakrydd
Pipar
Hreinsa kjúklingabringurnar, stinga gat eftir endilangri bringunni, taka gráðostinn og merja hann með gafli þannig hægt sé að fylla bringurnar með honum. Krydda að utan með kjúklingakryddi og nýmöluðum pipar. Gott að láta standa í ca. 2 klst.
Bringurnar síðan grillaðar í ca. 10-15 mínútur.
Ostasósa
1 dós hreinn smurostur
1 stk. piparostur
¼ gráðostur ( má vera minna)
1 msk. rifsberjahlaup
1 stk. grænmetisteningur
¼ l rjómi
Setja rjómann í pott á vægan hita, rífa piparostinn niður og bræða hann í rjómanum. Bæta smurostinum og gráðostinum út í. Leysa grænmetisteninginn í smá vatni og hræra saman við. Ef sósan verður of þykk þynna hana þá með mjólk eða rjóma. Setja rifsberjahlaupið saman við í lokin. Gott að bera fram með fersku salati og grilluðum sveppum. Alltaf gott að enda á einhverju sætu og góð.
Kanil ostakaka
Botn
150 g hafrakex með súkkulaði
120 g smjörvi bræddur
½ bolli púðursykur
Smá kanill ( eftir smekk ca. 2 tsk. má vera meira)
Kexið mulið í matvinnsluvél og smjöri, sykri og kanill bætt út í og blandað saman. Kexið er síðan sett í botn á fati eða springformi.
Fylling
200 g rjómaostur
120 g flórsykur
¼ l rjómi
Rjómaosti og flórsykri er þeytt saman og þeyttum rjómanum blandað rólega við með sleif. Fyllingin sett ofan á botninn og kakan er fryst í að a.m.k. 2 klst.
Kakan er borin fram hálf frosin, gott að bera fram með henni sósu úr berjum og hella yfir hana.
Sósa á ostakökuna
100 g frosin hindber/ bláber
50 g sykur
Frosin hindber/ bláber sett í pott með sykrinum. Suðan er látin koma upp og soðið í ca 1-2 mín. Mér finnst best að hella sósunni yfir sykkti til að taka berjahratið frá. Sósan borin fram heit eða volg.
Nína Hrönn skorar á móður sína, Vigdísi Sævaldsdóttur, að leggja til uppskriftir í Matarkrók næstu viku.
