Gæs í bláberjasósu, salat og Nan brauð
Gæs í bláberjasósu
Fyrir 5-6 manns
Gæsabringur af tveim fuglum
1 krukka bláberjasulta
3 dl olía
1 dl soya sósa (teriaky sósa)
½-1 tsk salt
Pipar og villibráðarkrydd
Blandið kryddleginum saman, setjið í eldfast mót og vel hreinsaðar gæsabringur úti. Gott að láta marinera í 6-12 klukkutíma. Takið bringurnar úr kryddleginum og grillið eða steikjið við háan hita (bara stutt til að loka bringunum). Setjið gæsabringurnar aftur í kryddlöginn og inn í ofn í 20 mínútur við 200 gráðu hita. Kryddlögurinn er svo notaður sem sósa og gott er að skera bringurnar í þunnar sneiðar áður en þær eru bornar fram. Þessi uppskrift klikkar aldrei og kryddlögurinn mýkir bringurnar þannig að þær eru nánast aldrei seigar eða þurrar.
Gott er að bera gæsina fram með kartöflubátum. Þá sker ég þær í 4-6 báta (með hýði) og set í eldfast mót eða ofnskúffu, skvetti olíu yfir þær, Maldon-salti, svörtum pipar og timian og hæri aðeins í. Baka þær í ofni við 180 gráður í um klukkustund, gott er að hræra tvisvar í á meðan.
Mér finnst líka gott að hafa ástralska salatið hennar Steinunnar frænku með. Það er svona:
Salat
80 g ferskt spínat
200 g tómatar (best að hafa þá litla t.d. konfekttómata)
1 bolli pekanhnetur, ristaðar
½ rauðlaukur
-blandað saman í skál
2 msk maple sýróp
1 msk hvítvínsedik
1 tsk dijon sinnep
Þessu er hrært/hrist saman og hellt yfir salatið.
Nan brauð
Góð með bragðmiklum mat t.d. indverskum. Þessi brauð eru mjög góð, það þarf að gefa sér góðan tíma í að útbúa þau en eru alveg þess virði.
150 ml volg mjólk
2 tsk sykur
2 tsk þurrger
2 msk olía
150 ml hrein jógúrt
1 stórt egg
-sett í skál og hrært vel saman
450 g hveiti (geymið 1-2 dl)
½ tsk salt
1 tsk lyftiduft
-sett út í skálina og hrært vel í, hveiti er bætt úti eftir þörfum og þegar ekki er hægt að hræra lengur er það hnoðað á bekk. Deigið er látið lyfta sér í skálinni í 20 mín. Þá er það hnoðað aftur og skipt í 8 hluta. Hnoðið í kúlur sem eru flattar út og pikkaðar með gaffli. Brauðin er höfð aðeins þykkri en pizza. Látið brauðin lyfta sér í 15-20 mín, t.d. á bökunarplötum og þá er gott að strá hveiti yfir þær áður. Brauðin eru steikt á þurri pönnu, passið að hafa ekki of mikinn hita svo þau bakist í gegn. Gott að hafa smjör með.
"Ég ætla að skora á móðursystur mína, hana Svölu K. Stefánsdóttur, hún eldar daglega ofaní tugi manns og er snillingur í að baka gerbrauð sem oftast eru skálduð á staðnum."
