Einfalt og fljótlegt yfir sumartímann

Jónína Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur á barnadeild FSA tók áskorun Aðalheiðar Guðmundsdóttur og er hér mætt með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar. "Yfir sumartímann er um að gera að hafa eldamennskuna einfalda og fljótlega, þess vegna mæli ég með hunangsgljáðum kjúklingabringum, ofnbökuðum kartöflum og grillspjótum. Súkkulaðibúðingurinn er svo syndsamlega góður á eftir," segir Jónína.

Hunangsgljáðar kjúklingabringur

800 g kjúklingabringur, beinlausar

4 msk. hunang

2 greinar ferskt estragon

½ tsk. salt

½ tsk. mulinn pipar, hvítur og svartur

Kjúklingabringurnar eru skolaðar, þerraðar og kryddaðar með salti og pipar. Hunangið er hitað í potti og ferskt estragonið er rifið út í. Hellið þessu svo yfir bringurnar og veltið þeim vel upp úr hunanginu. Steikið á heitu grilli í 7-10 mínútur á hvorri hlið.

Ofnbakaðar kartöflur

Kartöflur

Sæt kartafla

Olívuolía

Basilika

Skerið kartöflurnar í hæfilega stóra bita, setjið í eldfast mót. Blandið olíu og basiliku saman við og bakið í 180° heitum ofni í ca. 30 mínútur.

Grillspjót

Sveppir

Cherrytómatar

Paprika

Rauðlaukur

Zuccini

Ferskur ananas

Skerið í hæfilega stóra bita, þræðið upp á grillpinna og grillið í ca. 3-5 mínútur.

Grillaðir maísstönglar

Sjóðið maísstönglana í 10 mínútur í léttsöltu vatni, grillið þá síðan í 6-8 mínútur, snúið öðru hvoru.

Súkkulaðibúðingur

300 g 70% súkkulaði

50 g ósaltað smjör

4 egg, aðskilin

100 sykur

5 dl rjómi, léttþeyttur

Súkkulaði og smjör brætt saman í vatnsbaði. Eggjarauður þeyttar með 25 g sykri. Eggjahvítur þeyttar með 75 g sykri. Eggjablöndum blandað mjög varlega saman með sleif. Síðan er súkkulaðinu blandað varlega saman við eggjablönduna. Loks er rjómanum bætt við með sleif. Sett í kæli í a.m.k. 3 klst., má gjarnan gera kvöldinu áður. Gott að setja fersk jarðaber yfir og bera fram með þeyttum rjóma.

"Ég skora á Nínu Hrönn Gunnarsdóttur, hjúkrunarfræðing, í næsta Matarkrók, hún er algjör meistarakokkur.  Verði ykkur að góðu."