Fimmtudagur 26. júlí 2012 - 13:41
Evrópuleikur á Þórsvelli
Þór á erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld er liðið tekur á móti tékkneska úrvalsdeildarliðinu FK Mlada Boleslav í seinni leik liðanna í annarri umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu karla. Þór tapaði fyrri leiknum, 0-3, á útivelli fyrir viku síðan og þarf því minnst að skora fjögur mörk í kvöld til þess að komast áfram. Fyrirliði Þórs, Sveinn Elías Jónsson, segir enga pressu vera á sínu liði fyrir leikinn í kvöld sem hefst kl. 19:15 á Þórsvelli.
„Það verður sannarlega á brattan að sækja. Þetta er mun sterkara lið en við höfum verið að spila við undanfarin ár. Þannig að það þarf virkilega mikið að gerast svo við náum að slá þá út,” segir Sveinn. Nánar er rætt við hann um leikinn í kvöld í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.
Spurning vikunnar
Já, alveg örugglega
83%
Það efast ég nú stórlega um
17%
Skiptir litlu máli, ég fer aldrei í berjamó
0%
Þátttakendur: 6
Veðrið
Akureyri
4°C
Norð- norðaustan
1m/s
Reykjavík
8°C
Suðaustan
5m/s
Ólafsfjörður
1°C
Suð- suðvestan
2m/s
Siglufjörður
3°C
Vest- suðvestan
1m/s
Víkurskarð
2°C
Aust- suðaustan
4m/s
Öxnadalsheiði
3°C
Norðvestan
2m/s
Holtavörðuheiði
4°C
Austan
2m/s


