Sundfélagið Óðinn á 50 ára afmæli í ár
Sundfélagið Óðinn á 50 ára afmæli í ár. Afmælisdagurinn er 12. september. Saga félagsins er saga um þrautseigju og áhuga fólks sem í upphafi klauf sig út úr sunddeildum KA og Þórs og stofnaði félagið. Þetta félag var félag ungs fólks með hugsjón. Hugsjón sem varð þess valdandi að gömul félagsbönd voru látin lönd og leið og saman sótti þetta unga fólk fram undir nýju merki.
Í merki Óðins má sjá bláa litinn frá KA og þann rauða frá Þór, öldurnar sem minna á vatnið og bóksafinn A fyrir Akureyri. Syndandi sameinaðir Akureyringar! Ekki ónýt afmælisgjöf til Akureyrarkaupstaðar á 100 ára afmælisári þess. Nokkrum árum seinna þótti þetta merki ljótt og reynt var að breyta til en einhvern veginn var það aldrei tekið í sátt af öllum og gamla merkið fékk aftur að njóta sín sem tákn félagsins.
Sagan bak við merkið er bara ein af sögunum sem leynast í félaginu. Sagan um tilurðina, veruna og upplifun hvers og eins sem átt hefur samleið með Sundfélaginu Óðni eru aðrar sögur sem gaman væri að fá frá sem flestum sjónarhornum.
Við sem sitjum í ritnefnd Óðins erum að leyta að þessum sögum. Þess vegna leitum við til þín sem hefur áhuga á að leggja okkur lið. Ef þú hefur æft eða átt aðkomu að félaginum í gegnum þessi 50 ár þá þætti okkur vænt um að heyra frá þér. Þessar spurningar sem hér eru fyrir neðan eru settar fram til að koma þér af stað ef það hentar þér betur.
1. Veistu hverjir það voru sem stofnuðu félagið og hvað varð til þess að það var stofnað?
2. Hvenær æfðir þú og hver var þjálfarinn þinn?
3. Hvað æfðir þú oft í viku og hve lengi í einu?
4. Hvað hafði sundfélagið margar brautir á meðan á æfingum stóð?
5. Settir þú einhver met?
6. Tókstu þátt í einhverjum landsliðsverkefnum?
7. Hverjir æfðu með þér?
8. Hefuðu einhver tengsl við sundfélagið Óðinn í dag? ef svo er , hver þá?
9. Ferðu oft í sund núorðið?
10. Einhver skemmtilega saga sem þú mannst eftir sem tengist þessum árum?
Svör við einni eða öllum spurningum óskast innilega. Sérstaklega þætti okkur vænt um ef sú 10. gæfi þér tilefni til svara. Sagan má vera af atburði eða af Óðinsmanneskju. Aðalatriðið er að sagan segi eitthvað um félagið, andann, félagsskapinn eða verkefnin og ekki skemmir að hún sé krydduð með húmor eða óljósum minningum. Hjálpið okkur að safna saman þessum litlu brotum af lífi félagsins sem býr innra með okkur svo mörgum.
Svör má senda til Dillu. (Dýrleif Skjóldal, Arnarsíða 4a, 603 Akureyri) eða á dillaskjoldal@gmail.com.
Með fyrirfram þökkum, Dilla, Karen og Lísa í ritnefnd Óðins.
