Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í annað sinn

Atvinnu og nýsköpunarhelgin (ANH) verður haldin í annað skipti helgina 24.-26.febrúar. Í apríl í fyrra fór hún fram í fyrsta skipti og tóku 70 þátttakendur þátt og þrettán hugmyndir voru kynntar á þeirri helgi. Húsnæði Háskólans á Akureyri hentar mjög fyrir slíkar helgar og öll umgjörð helgarinnar fyrsta flokks.

Helgin er hugsuð fyrir alla áhugasama, 18 ára og eldri sem vilja hrinda hugmyndum í framkvæmd, hvort sem það séu þeirra eigin eða annarra. Unnið er í hópum heila helgi að hugmyndunum. Í hópunum eru yfirleitt fimm til átta manns sem vinna saman og best er að allir innan hópsins séu virkir. Fólk getur verið búið að hópa sig saman áður, en það er auðvitað líka hægt að koma og ekkert skilyrði að vera með hugmyndir í farteskinu. Á staðnum verða leiðbeinendur sem ganga um og eru tilbúnir til að hjálpa og gefa góð ráð við að koma hugmyndum í framkvæmd.

Upplýsingar um hvernig vinnulagi er háttað yfir helgina er að finna á: www.anh.is.

Kynningar á þeim verkefnum sem unnið hefur verið með yfir helgina fara síðan fram klukkan þrjú á sunnudeginum. Þær eru öllum opnar og hvetjum við félagarnir alla til að mæta á þær og kynna sér þær hugmyndir og verkefni sem unnið hefur verið að yfir helgina. Í fyrra var þetta ákaflega skemmtilegur hluti ANH-helgarinnar að fylgjast með hugmyndasmiðum flytja sínar kynningar fyrir dómnefnd. Við reiknum með að verðlaun verði síðan veitt um klukkan fimm. Við leitumst eftir að bæta og styrkja umgjörð helgarinnar og núna koma starfsmenn og nemendur Háskólans á Akureyri að helginni með enn öflugri hætti en í fyrra. Einnig munu starfsmenn Nýsköðunarmiðstöðvar koma að helginni. Akureyrarkaupstaður styrkir ANH-helgina með myndarlegu framlagi. Fjöldinn allur af fyrirtækjum á Akureyri styrkir helgina með fjárframlögum. Fyrirtæki í matvælaiðnaði á Akureyri styðja helgina einnig með sínum vörum sem þátttakendur fá að gæða sér á yfir helgina. Innovit kemur að umsjón og skipulagningu helgarinnar með stuðningi Landsbankans. Við viljum þakka öllum þessum aðilum kærlega fyrir þeirra aðkomu að helginni.

Verði árviss viðburður

Það er von okkar og trú að ANH-helgin verði árviss viðburður þar sem frumkvöðlar komi saman í samstarfi við Háskólann á Akureyri og atvinnulífið á svæðinu. Þar sem aðilar með hugmyndir að nýsköpun komi saman til að skapa ný störf í starfandi fyrirtækjum sem og ný störf í nýjum fyrirtækjum, koma saman og vinna saman yfir helgi að móta og þróa hugmyndirnar. Þannig að atvinnulífið eflist og ný störf verði til.

Að lokum viljum við hvetja alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér Atvinnu- og nýsköpunarhelgina á heimasíðu helgarinnar (www.anh.is) þar sem frekari upplýsingar er að finna og dagskrá helgarinnar kynnt. Á síðunni er einnig hægt að skrá sig til leiks. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Matthías Rögnvaldsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Sigurður Guðmundsson.