Allir hlægja á öskudaginn

“Allir hlægja á öskudaginn,” segir einhvers staðar og það er óhætt að segja að akureysk ungmenni hafi haft ástæðu til brosa upphátt í dag, á öskudaginn. Börnin tóku daginn eldsnemma og héldu út í morguninn í alls kyns búningum, heimsóttu fyrirtæki, verslanir og stofnanir og tóku lagið í þeirri von að fá eitthvað góðgæti í staðinn. Víðast hvar var vel tekið á móti börnunum, sem þó höfðu lagt misjafnlega mikið í búninga og söngatriði. Allir reyndu þó að gera sitt besta. Leikfélag Akureyrar og Norðurorka leiddu saman hesta sína og buðu upp á kattarslag á flötinni neðan við Samkomuhúsið. Í Samkomuhúsinu var tekið vel á móti öllum syngjandi kátum sjóræningjum og landkröbbum. Krökkunum var boðið upp á svið til að syngja öskudagssöngva og samkeppni var í gangi. Mikill fjöldi barna var á ferð um miðbæinn og það sama var upp á teningnum á Glerártorgi, þar sem fram fór söngvakeppni og kötturinn var sleginn úr tunnunni. Hjá Blikkrás fór einnig fram árleg söngkeppni í tilefni dagsins og starfsfólkið tók virkan þátt og mætti einnig uppáklætt til starfa.

 

Beint flug milli Ljubljana og Akureyrar í sumar

Þann 26. júní nk. lendir Airbus 320 á Akureyrarflugvelli með allt að 180 ferðamenn frá Slóveníu á vegum Ferðaskrifstofunnar Nonna.  Fólkið, mun leggja leið sína um Norðurland og víðar næstu 7 dagana áður en það snýr til síns heima 3. júlí. Ferðaskrifstofan Nonni var stofnuð 1989 með það að markmiði að taka á móti erlendum ferðamönnum á Akureyri og greiða leið þeirra um Norðurland sérstaklega. Þetta hefur tekist bærilega og er skrifstofan sem betur fer ekki lengur ein, heldur eru fjölmargir aðilar hér á svæðinu, sem allir leggjast á eitt. Í fyrra var ferðaskrifstofan einnig með beint flug frá Slóveníu og eru þessi flug liður í þeirri viðleitni að fá sem flesta ferðamenn beint hingað. Auðvitað væri betra að fá fleiri og reglubundnari flug, en þau hljóta samt að skipta máli, ekki síst nú, þegar Iceland Experess hefur hætt sínu flugi til Akureyrar, segir í frétt frá ferðaskrifstofunni.

Viðunandi nýting á flugvélunum byggist á, að Íslendingar nýti flugið einnig.  Skrifstofan hefur því sett saman áhugaverð ferðatilboð fyrir Íslendinga, sem býðst að fljúga beint til og frá Slóveníu sömu daga.  Hefur eftirspurn verið mjög góð og nær hún til allra landshluta.  Einn af kostum Akureyrarflugvallar, er hversu stuttan tíma það tekur að innrita sig og fara í gegnum vopnaleit.  Lítil fríhöfn er á vellinum og ekkert sem beinlínis vantar. Samstarfsaðilar í Slóveníu eru Adria Airways og ferðaskrifstofur, sem hafa selt ferðir til Íslands í mörg ár.  Það hefur kostað mikla fyrirhöfn að telja hina erlendu samstrafsaðila á að fljúga til Akureyrar, því Reykjavík og Keflavíkurflugvöllur eru flestum efst í huga.  

Í fyrra voru 20 ár liðin síðan Íslendingar viðurkenndu fyrstir þjóða sjálfstæði Slóveníu, og gróðursettu þá hver og einn hinna erlendu gesta eitt tré í sérstakanlundí Kjarnaskógi við Akureyri.  Nú er ætlunin að endurtaka þetta og stækka lundinn.

 

 

 

 

 

Slysavarnaskóli sjómanna fær höfðinglega gjöf frá VÍS

Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afhenti í gær Slysavarnaskóla sjómanna 10 björgunarbúninga til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Er það liður í forvarnasamstarfi sem hófst haustið 2009 og felur meðal annars í sér að VÍS færir skólanum árlega tug björgunarbúninga enda engin vanþörf á þar sem skólinn þarf að endurnýja hátt á þriðja tug björgunarbúninga á ári vegna mikillar notkunar á þeim á æfingum skólans. Markmið forvarnarsamstarfsins er að efla öryggismenningu um borð í fiskiskipum og gera störf sjómanna þannig öruggari en þau eru í dag. Helstu leiðarljósin í forvarnarsamstarfinu eru virk skráning allra atvika þar sem  slys verða en líka þegar verður „næstum því slys“. Allt er skráð niður og gert er áhættumat á öllum störfum um borð. Þannig er hægt að greina tíðni, staðsetningu og orsakir slysanna til að stuðla að bættum forvörnum og koma í veg fyrir slys á meðal sjómann.

Samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa árið 2011 var á því ári tilkynnt um 251 slys á sjómönnum til Sjúkratrygginga Íslands sem er um 10% fækkun á skráðum slysum milli ára. Ekkert banaslys varð í fyrra. Einungis 69 þessara slysa voru tilkynnt til Rannsóknarnefndar sjóslysa. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um 321 slys á sjómönnum á ári til Sjúkratrygginga Íslands undanfarinn áratug. Eitt meginmarkmið samstarfs VÍS og Slysavarnaskóla sjómanna er að efla skráningu og tilkynningar slysa um borð í fiskiskipum, enda er það forsenda úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða.  „Öll þjálfun sjómanna er mikilvæg og nauðsynlegt að sjómenn beiti forvörnum á sínum vinnustað til að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Liðsinni tryggingafélagsins er mikilvægur stuðningur við starfsemi skólans og þáttur í báráttunni gegn slysum á sjó er “, sagði Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna við móttöku nýju björgunarbúninganna.

 

 

Átak í bættri umgengni og umhirðu í sveitarfélaginu

Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistans ræddi um umgengni og umhirðu í Akureyrarkaupstað á fundi bæjarstjórnar í gær. Hann taldi mikilvægt á þessu 150 ára afmæli bæjarins, að allir leggðust á eitt við að gera bæinn sem fallegastan og að hann yrði kominn í sitt besta og fallegasta form á sjálfan afmælisdaginn 29. ágúst nk. Aðrir bæjarfulltrúar sem tóku til máls, tóku undir með Sigurði. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri tók einnig þátt í umræðunni og hann sagði að því miður væri töluvert af rusli í miðbænum um helgar. Sigurður lagði fram tillögum að bókun, sem samþykkt var samhljóða en þar segir: “Bæjarstjórn samþykkir að fela framkvæmdaráði að vinna áfram að hugmyndum um átak í bættri umgengni og umhirðu í sveitarfélaginu. Leita skal samráðs við skipulagsdeild, hverfisnefndir auk samtaka atvinnurekenda á Akureyri, í þeirri viðleitni að virkja samfélagið í heild sinni til betri vitundar um umgengni og umhirðu.”

 

 

Dönsk gamanmynd sýnd í Hofi í kvöld

Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb  Akureyrar) sýna kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof. Í kvöld, 22. febrúar kl. 20 verður kvikmyndin Superclásico (Erkifjendur) sýnd en þessi eldfjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna.

Vínbúðareigandinn Christian er afar óhress með yfirvofandi brúðkaup fyrrverandi konu sinnar Önnu og hins heimsfræga og alræmda knattspyrnukappa Juan Diaz. Eftir að hafa fundið kjarkinn á botni eðalvínflösku ákveður Christian að halda til Argentínu, stöðva brúðkaupið og vinna Önnu sína aftur. Með aðalhlutverk fara; Anders W. Berthelsen, Paprika Steen, Jamie Morton og Sebastian Estevanez. Leikstjóri er Ole Christan Madsen.

Hugmyndir um íþrótta- og tómstundaskóla fyrir 5-9 ára börn

Á fundi skólanefndar Akureyrar í gær var lögð fram tillaga um að stofna og tilnefna fulltrúa í starfshóp um skipulag íþrótta- og tómstundaskóla (Heilsdagsskóla) fyrir börn á aldrinum 5 - 9 ára á Akureyri. Markmiðið er að mynda samfelldan skóladag hjá börnum á þessum aldri þar sem fléttað er saman íþróttaiðkun, tómstundum og listsköpun. Reiknað er með því að ráða verkefnastjóra tímabundið í átaksverkefni til að stýra verkinu. Verkefnið þarf að vinna í samstarfi við samfélags- og mannréttindaráð, íþróttaráð, íþróttafélög og tómstundafélög í bænum. Þess vegna var lagt til að í starfshópnum verði einn fulltrúi frá skólanefnd, að samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð sameinist um einn fulltrúa og að ÍBA og tómstundafélög sameinist um einn fulltrúa. Skólanefnd samþykkti tillöguna samhljóða.

Á fundinum var einnig lagt fram nýtt rekstraruppgjör fyrir árið 2011 með skýringum. Þar kemur fram að reksturinn er í heild 0,4% umfram áætlun eða um 20 milljónir króna. Þar munar mest um hærri húsaleigukostnað og kostnað umfram tekjur í skólamötuneytum allra skólanna.

Fréttamiðlar í 57 löndum fjölluðu um Heimboð Íslendinga

„Fiskisagan flýgur“ segir orðtakið og það má til sanns vegar heimfæra það upp á heimboð Íslendinga til útlendra ferðamanna í tengslum við markaðsverkefnið „Ísland allt árið“. Átakið náði að kitla fréttanef fréttastjóra ótal fjölmiðla í 57 löndum sem birtu fréttir um heimboðin. Þeirra á meðal eru margar af stærstu fréttastofum heims, s.s. CNN, BBC, MSNBC, CNBC, Yahoo.com, Reuters, LA Times, The Times of London ... svo aðeins nokkrar séu upp taldar.
Þá náðu heimboðin miklu flugi í samfélagsmiðlum af öllu tagi og telst mönnum til að rúmlega 15 milljónir manna hafi - „commentað“/“twittað“/bloggað/tíst/og hvað þetta nú allt heitir - um átakið og að sú umfjöllun hafi náð athygli 451 milljón notenda um allan heim.

Heimboðin voru upphaflega hugsuð sem upptakturinn að þriggja ára markaðsverkefni „Ísland – allt árið“ sem miðar að því að fjölga erlendum ferðamönnum utan hins hefðbundna ferðamannatíma um sumarið. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og mikill fjöldi Íslendinga um allt land tók þátt í verkefninu við miklar og góðar undirtektir erlendu gestanna og heimspressunnar.

Í upphafi var einungis reiknað með að heimboð stæðu í tvo mánuði, en vegna góðrar þátttöku og mikils áhuga ferðamanna hefur verið ákveðið að heimboðin verði áfram hluti af verkefninu, en reynt verður að tengja þau áherslum herferðarinnar hverju sinni. Íslandsstofa annast framkvæmd verkefnisins, sem er undir stjórn iðnaðarráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Icelandair, Reykjavíkurborgar, Samtaka ferðaþjónustunnar, Iceland Express, ISAVIA, Samtaka verslunar og þjónustu og Landsbankans. Rúmlega 130 fyrirtæki eru þátttakendur í verkefninu, segir í frétt frá iðnaðarráðuneytinu.

 

LA og Norðurorka í samvinnu á öskudaginn

Öskudagurinnn er á morgun miðvikudag og þá munu akureysk ungmenni taka daginn eldsnemma að vanda og halda út í daginn í alls kyns búningum. Börnin munu heimsækja fyrirtæki, verslanir og stofnanir út um allan bær, taka þar lagið, í þeirri von að fá eitthvað gott að launum. Í tilefni öskudagsins, hafa Leikfélag Akureyrar og Norðurorka leitt saman hesta sína og ætla að bjóða upp á kattarslag á flötinni neðan við Samkomuhúsið kl. 10.30. Í Samkomuhúsinu verður tekið vel á móti öllum syngjandi kátum sjóræningjum og landkröbbum. Krökkum verður boðið upp á svið til að syngja öskudagssöngva og samkeppni verður um flottasta búninginn. Það lið sem slær tunnuna fær fjóra miða á Gulleyjuna. Það lið sem slær köttinn fær fjóra miða á Gulleyjuna og sá sem vinnur búningasamkeppnina fær tvo miða á Gulleyjuna.

 

 

Krafan um leiðréttingu verðtryggðra lána aldrei verið réttmætari en nú

Á aðalfundi Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, sem haldinn var í gærkvöld, var stjórn félagsins falið að skora á ráðamenn þjóðarinnar að ná pólitískri samstöðu og koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán, með almennum leiðréttingum. “Eftir nýlegan dóm Hæstaréttar í gengislánamálinu er orðinn verulegur munur á stöðu þeirra sem tóku gengistryggð lán og þeirra sem tóku verðtryggð lán. Stjórn félagsins minnir á nýleg ummæli formanns efnahags- og skattanefndar þar sem hann sagði að í nýrri greinargerð frá matsfyrirtækinu Fitch væri sérstaklega fjallað um að skuldir heimilanna væru enn of miklar og þær yrðu að lækka. Krafan um leiðréttingu verðtryggðra lána hefur því aldrei verið háværari og réttmætari en einmitt nú,” segir í ályktun FVSA.

 

Síðasta ár merkt atvinnuleysi, kaupmáttarrýrnun og óöryggi

Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) var haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær. Um síðustu áramót voru félagsmenn 2.049; 814 karlar og 1.225 konur. Þar af eru 310 lífeyrisþegar. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir kynnti skýrslu stjórnar og þar kom m.a. fram að þó starfsemi félagsins hefði verið með hefðbundnum hætti á síðasta ári, þá var þetta mikið framkvæmdaár í sögu félagsins. Úlfhildur fjallaði einnig um atvinnumálin og sagði að þetta þriðja ár frá efnahagshruninu væri eins og hin tvö fyrri merkt atvinnuleysi, kaupmáttarrýrnun og óöryggi á flestum sviðum. Þó hefðu örlítið færri félagsmenn verið á atvinnuleysisbótum flesta mánuði árisins miðað við 2010.

Í máli Úlfhildar kom fram að á síðasta aðalfundi hefði verið sagt frá fyrirhuguðu samstarfi fjögurra stéttarfélaga á þriðju hæð Alþýðuhússins. „Ákveðið var að breyta suðurhluta þriðju hæðar þannig að félögin fjögur hefðu sameiginlega móttöku. Verkið var boðið út í ágúst og þegar framkvæmdir hófust fluttum við starfsemi skrifstofunnar í bráðabirgðaraðstöðu í norðurhluta þriðju hæðar. Í nýuppgert húsnæðið fluttum við svo í lok desember og höfum verið að koma okkur þar fyrir smátt og smátt. Húsnæðið var til sýnis fyrir félagsmenn og gesti 10. febrúar sl. og var ekki annað sjá en að gestir væru ánægðir með breytinguna. Við starfsfólkið erum afar ánægð með hvernig til hefur tekist og trúum að þjónusta við félagsmenn verði enn skilvirkari en áður. Kostnaður okkar félags við húsnæðið ásamt kaupum á sameiginlegu innbúi og ýmsum tækjum mun verða um 15 milljónir.“

Úlfhildur fjallaði um endurskoðunarákvæði kjarasamningsins sem voru til umfjöllunar í janúar þar sem var lagt mat á  hvort ástæða væri til að segja samningnum upp vegna forsendubrests, „því ríkisstjórnin hefur ekki staðið við gefin loforð samkvæmt yfirlýsingu sem hún gaf 5. maí og er hluti kjarasamningsins. Haldnir voru tveir formannafundir ASÍ í janúar og yfirgnæfandi meirihluti á þeim fundum taldi að ekki væri ráðlegt að falla frá samningnum á þessum tíma. Þó er ljóst að aðstæður í þjóðfélaginu hafa lítið batnað undanfarið ár, enn er allt of mikið atvinnuleysi, verðbólga of mikil og skuldsett heimili afar illa stödd.“

Þá fjallaði Úlfhildur um nýlega útkomna skýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna sem sýnir að þeir hafa orðið fyrir mjög miklu tapi til viðbótar því að hafa þurft að skerða réttindi verulega á undanförnum árum, þ.e.a.s almennu sjóðirnir. „Í skýrslunni kemur berlega í ljós sá hróplegi mismunur sem er á kjörum þeirra sem greiða annars vegar til okkar almennu lífeyrissjóða og hins vegar til opinberu sjóðanna. Þó allir sjóðir hafi tapað kemur það aldrei niður á opinberu sjóðunum, þeir eru gulltryggðir af ríkissjóði, almenningur borgar brúsann.“

Þetta kemur fram á vef FVSA.

 

 

Spenntur fyrir hugmyndinni að breyta Sjallanum í hótel

Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar segist fylgjandi því að Sjallanum á Akureyri verði breytt í hótel, eins og hugmyndir eru um. Hann segir að sú skoðun sé almennt ríkjandi innan L-listans. Eins og fram hefur komið, hafa fjárfestar í Reykjavík gert bindandi kauptilboð í Sjallann og hafa þeir jafnframt sent inn fyrirspurn til bæjarins um hvort leyfi fáist til að breyta húsnæðinu í hótel. Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar í síðustu viku og í bókun frá fundi nefndarinnar kemur fram að samkvæmt aðalskipulagi sé lóð Sjallans á skilgreindu miðsvæði, þar sem gert er ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi, s.s. veitinga- og gistihúsum. Skipulagsnefnd telur því að umbeðin breyting á notkun hússins falli undir ákvæði og skilmála gildandi aðalskipulags og deiliskipulags svæðisins.

Geir Kristinn segir að rekstraraðilar Sjallans hafi bent bæjaryfirvöldum á að það sé orðið mjög erfitt að reka svona stað. “Menningin hefur breyst og ég skil sjónarmið þeirra vel. Sjallinn er barn síns tíma og þótt margir sjái eftir staðnum sem slíkum, þá þurfa svona staðir að reka sig. Fyrirhuguð breyting verður vonandi til þess að draga hingað fleiri ferðamenn. Húsið sjálft og nánasta umhverfi verður þá vonandi gert upp, þannig að þetta ætti að verða upplyfting fyrir miðbæinn. Ég er því mjög spenntur fyrir þessari hugmynd.”

Sjallinn er um 2000 fermetrar að stærð en hugmyndin er að bæta einni hæð ofna á húsið. Gangi fyrirliggjandi hugmyndir eftir, er stefnt að því opna hótel í húsnæðinu fyrir sumarið 2013.

 

Bakaríið við brúna býður upp á sérstaka afmælistertu

Á þessu ári eru 150 ár liðin frá því Akureyri hlaut kaupstaðarréttindi og eins og komið hefur fram verður tímamótunum fagnað allt árið með margvíslegum hætti. Efnt var til hönnunarsamkeppni á afmælismerki, á vegum Akureyrarbæjar í samstarfi við Myndlistarskólann sl. haust, og var verkefnið lagt fyrir 22 nemendur, á fyrsta, öðru og þriðja ári, við listhönnunardeild skólans. Fyrir valinu varð merki Sigrúnar Bjargar Aradóttur. Afmælisnefndin hefur m.a. hvatt matvælafyrirtæki í bænum til þess að nýta sér afmælisárið og þá afmælismerkið, í samstarfi við nefndina og bjóða upp á sérstakar afmælisvörur. Bakaríið við brúna var fyrst fyrirtækja til að ríða á vaðið en í gær, á konudaginn, var sérstök afmælisterta kynnt formlega, terta sem verður í boði allt þetta ár. Af þessu tilefni heimsóttu fulltrúar í afmælisnefnd bæjarins og starfsfólk nefndarinnar, bakaríið í morgun, þar sem þeim gafst kostur á að bragða á tertunni. Tertan bragðaðist vel og sagði Tryggvi Þór Gunnarsson formaður afmælisnefndar, að það væru sóknarfæri fyrir fyrirtæki í bænum að nýta sér þessi tímamót. Hann sagðist jafnframt vonast til að fleiri fyrirtæki myndu fylgja í kjölfarið og nýta sér afmælið og afmælismerkið til að koma vörum sínum á framfæri.  Auk Tryggva eru í afmælisnefndinni þær Helena Þ. Karlsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir en starfsmenn nefndarinnar eru Hulda Sif Hermannsdóttir, Pétur Bolli Jóhannesson og Sigríður Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri afmælisársins.