RÚV Norðurland

Syndicate content
RÚV - RSS
Updated: fyrir 2 dagar 7 klst

Kaup Landsbankans á Verdis skoðuð

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 14:05
Samkeppniseftirlitið ætlar að taka að nýju til athugunar kaup Landsbankans á eignarhlut í fyrirtækinu Verdis. Verdis var áður Arion verðbréfavarsla. Segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að skoða beri hvort unnt sé að setja samrunanum einhver skilyrði.

Samkeppniseftirlitið hafði áður ógilt kaup Landsbankans á hlut í Verdis, og taldi samrunann raska samkeppni á markaði fyrir verðbréfaumsýslu með alvarlegum hætti. Ákvörðunin var kærð og 16. febrúar ógilti áfrýjunarnefnd samkeppnismála hana. Áfrýjunarnefndin hefur lagt fyrir Samkeppniseftirlitið að veita áfrýjendum stuttan frest til að setja fram tillögur um skilyrði fyrir samrunanum, og því er málið tekið aftur til meðferðar.

Categories: Footer Feeds

Bátar skemmast í ís í Belgrad

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 14:03
Ís, sem brotnað hefur á Dóná eftir kuldakastið þar á dögunum, hefur valdið talsverðu tjóni á bátum og skipum í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Ekki er vitað um mannskaða, en þorri þeirra um 100 báta og skipa sem þar voru við hafnarbakka hafa orðið fyrir skemmdum og nokkrir eyðilagst.

 Dóná lokaðist að mestum hluta vegna íss í kuldakastinu, en ísinn fór að brotna upp í gær og hefur mikið íshröngl safnast upp í Belgrad.

Categories: Footer Feeds

Flóttamenn sluppu í land

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 13:44
Ítalska lögreglan hefur í dag handtekið um það bil þrjátíu erlenda flóttamenn sem komust á land skammt frá bænum Portigliola í Kalabríuhéraði, syðst á Ítalíu.

Flóttamennirnir komu siglandi með vöruflutningaskipi og þegar skipið var skammt frá landi skutu þeir út tveimur björgunarbátum og héldu til lands. Allir eru flóttamennirnir ungir að árum. Verið er að yfirheyra þá um þjóðerni þeirra og ferðir.

Categories: Footer Feeds

Heimsmarkaðsverð hráolíu hækkar

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 13:44
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað töluvert það sem af er degi.

Verð á tunnu af Norðursjávarolíu náði í dag 120 dollurum og 72 sentum og hefur ekki verið hærra síðastliðna níu mánuði. Tunna af léttri hráolíu kostar rúmlega 105 dollara á markaði í New York. Ástæða verðhækkunarinnar að er að þessu sinni einkum rakin til þess að Íranar hafa ákveðið að hætta að selja Bretum og Frökkum olíu. Þá er talið að samkomulag um neyðarlán til Grikkja hafi einnig áhrif á verðið.

Categories: Footer Feeds

Hóta frekara útflutningsbanni

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 13:28
Stjórnvöld í Íran hóta að hætta að flytja út olíu til fleiri Evrópuríkja en Frakklands og Bretlands ef fjandsamlegar aðgerðir gegn Írönum halda áfram.

Ahmad Qalebani, aðstoðar- olíumálaráðherra, segir að til greina komi að slíta viðskiptum við Spánverja, Grikki, Ítali, Portúgala, Þjóðverja og Hollendinga. Íranar flytja um 20% af hráolíunni sem þeir framleiða til Evrópuríkja, einkum Ítalíu, Grikklands og Spánar.

read more

Categories: Footer Feeds

Komast ekki að á dýrum lyfjum

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:59
Gísli Páll Pálsson, forstjóri og formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, segir í blaðagrein í Morgunblaðinu um helgina að gengið sé framhjá öldruðum sem notast við dýr lyf þegar valið er inn á hjúkrunarheimili.

Í viðtali við blaðið í dag segist velferðarráðherra kannast við þessa umræðu en sér hafi ekki borist neinar kvartanir. Gísli Páll fullyrðir að ein sparnaðarleið hjúkrunarheimila sé sú að þegar nýir heimilismenn eru valdir inn þá sé lyfjanotkun þeirra skoðuð sérstaklega. Daggjald Tryggingastofnunar Ríkisins tl hjúkrunarheimilanna dugi ekki fyrir launum, umönnun, fæði og lyfjum þegar lyf einstaklings kosti jafnvel mörghundruð þúsund krónur á mánuði. 

read more

Categories: Footer Feeds

Útlendingastofnun í fjárþröng

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:46
Stytta mætti um helming þann tíma sem það tekur að afgreiða umsókn um hæli hér á landi með því að veita Útlendingastofnun aukið fé til að ráða fleira starfsfólk, segir forstjóri. Það kosti hátt í eina milljón króna á mánuði að halda uppi fjölskyldu sem leitar hér hælis.

Núverandi forstjóri Útlendingastofnunar, Kristín Völundardóttir, tók við starfinu í júní 2010. Þá hafði ekki verið gerð ársskýrsla í  fimm ár. Í dag eru birtar skýrslur fyrir árin 2008 til 2010. Vegna manneklu hefur ekki verið lokið við ársskýrslu síðasta árs en gert er ráð fyrir að hún líti dagsins ljós fyrr en í mars eða apríl.

read more

Categories: Footer Feeds

Jón Gnarr hirti sorp í Árbæ

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:46
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, fór eldsnemma á fætur í morgun, klæddi sig í einkennisbúning sorphirðumanna og kynnti sér störf þeirra.

Frá þessu er sagt á vef Reykjavíkurborgar. Hann mætti klukkan sex í höfuðstöðvar sorphirðunnar í Gufunesi til að heilsa upp á mannskapinn sem kemur þá til vinnu.Eftir að hafa klætt sig var förinni heitið í Kvíslarhverfið í Árbæ. Þar gekk borgarstjórinn um í rúma klukkustund og hirti sorp með vöskum flokki sorphirðufólks.Jón sagði þetta greinilega mjög erfitt starf en það hafi komið sér á óvart hversu hratt og snurðulaust það gangi fyrir sig.

Categories: Footer Feeds

Safnaráð skoðaði gullið

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:37
Sérfræðingar frá safnaráði og fulltrúi tollstjóra skoðuðu í morgun gull og silfurgripi sem breski gullkaupmaðurinn Mark Nangle keypti hér á landi um helgina.

Engin menningarverðmæti voru í fórum hans en bannað er að fara með gripi sem eru eldri en hundrað ára úr landi. Gullkaupmenn mátu eigur fólks á þremur hæðum á Grand Hóteli um helgina. Biðraðir mynduðust fyrir utan herbergin. Mikil eftirspurn er eftir gömlum gullskartgripum vegna þess að heimsmarkaðsverð á gulli er í sögulegu hámarki. Mark Nangle og aðrir gullkaupmenn ferðast nú um Evrópu til að falast eftir gömlum gullskartgripum.

Categories: Footer Feeds

Landeigendur ósáttir

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:35
Mikil óánægja er meðal landeigenda um nýtt frumvarp til náttúruverndarlaga og drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum. Þetta kom fram á fundi Landssamtaka landeigenda um helgina þar sem stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd.

Heitar umræður spunnust um drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum, nýtt frumvarp til náttúruverndarlaga og frumvarp um veiðar á villtum fuglum og spendýrum á aðalfundi Landssamtaka landeiganda um helgina. Örn Bergsson, formaður samtakanna, segir að landeigendur muni berjast hart gegn þessum lagafrumvörpum en hann gagnrýndi umhverfisráðuneytið harðlega á fundinum fyrir að vera endalaust að undirbúa laga- og reglugerðarbreytingar sem miða að því að allir skapaðir hlutir verði bannaðir eða háðir leyfisveitingum.

read more

Categories: Footer Feeds

Gunnar mætti til vinnu í morgun

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:33
Fundur efnhags- og viðskiptanefndar stendur enn yfir og þar er einnig til umræðu boðuð uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Fundurinn hófst klukkan níu og er uppsögnin fimmta mál á dagskrá fundarins.

Gunnar Andersen fékk bréf á föstudag þar sem honum var tilkynnt að það ætti segja honum upp störfum. Fékk hann frest til dagsins í dag til að skila inn andmælum. Ástæðan er fyrrnefnd álitsgerð en þar kemur meðal annars fram að Gunnar hafi gefið villandi og ófullnægjandi upplýsingar við fyrirspurn FME árið 2001 um erlenda starfsemi Landsbankans. Jafnframt er tekið fram að ekkert bendi til þess að Gunnar hafi brotið lög.

read more

Categories: Footer Feeds

Ofhlaðið fjöltengi bráðnaði

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:25
Allt tiltækt slökkvilið var kallað að sendibílastöð við Klettagarða skömmu fyrir hádegi, en þar hafði verið tilkynnt um reyk. Fljótlega kom þó í ljós að um minniháttar bruna var að ræða og var því dregið úr útkallinu.

Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að starfsmenn sendibílastöðvarinnar höfðu tengt nokkur fjöltengi saman, og voru þau öll í fullri notkun. Endaði það með því að þau byrjuðu að bráðna. Slökkvilið reykræsti og lauk störfum stuttu eftir hádegið. Vill slökkvilið minna fólk á að ofhlaða ekki fjöltengi.

Categories: Footer Feeds

Engin menningarverðmæti fundust

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:25
Sérfræðingar frá safnaráði og fulltrúi tollstjóra skoðuðu í morgun gull og silfurgripi sem breski gullkaupmaðurinn Mark Nangle keypti hér á landi um helgina. Engin menningarverðmæti voru í fórum hans.

Bannað er að fara með úr landi gripi sem eru eldri en hundrað ára. Gullkaupmenn mátu eigur fólks á þremur hæðum á Grand Hóteli um helgina. Biðraðir mynduðust fyrir utan herbergin. Mikil eftirspurn er eftir gömlum gullskartgripum vegna þess að heimsmarkaðsverð á gulli er í sögulegu hámarki. Mark Nangle og aðrir gullkaupmenn ferðast nú um Evrópu til að falast eftir gömlum gullskartgripum.

Categories: Footer Feeds

Lenti undir fjórum fiskikerum

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:20
Karlmaður lenti undir fjórum fiskikerum í morgun er hann vann við löndun um borð í skipinu Arnari. Slysið átti sér stað við Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn og voru kerin öll full af fiski.

Að sögn lögreglunnar á Selfossi var maðurinn með meðvitund. Hann kvartaði undan verkjum í fótum, höndum og brjóstkassa, en ekki er vitað nánar um meiðsli hans.

Categories: Footer Feeds

Bílvelta á Suðurlandi

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:12
Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning rétt fyrir hádegi um bíl sem hafði oltið við Kjartansstaði í Flóanum, austan við Selfoss. Tveir útlendingar, maður og kona, voru í bílnum og þurfti að klippa þau út. Þau voru að sögn lögreglu bæði með meðvitund.
Categories: Footer Feeds

Pútín sigrar í fyrstu umferð

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:09
Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, sigrar í fyrstu umferð forsetakosninganna í Rússlandi 4. mars ef marka má nýja könnun sem gerð var í liðinni viku. Samkvæmt henni fær Pútín um 59 prósent atkvæða, en helming atkvæða þarf til að sigra í fyrstu umferð.

Gennady Zyuganov, leiðtogi Kommúnistaflokksins, fær 15 prósent og þjóðernissinnin Vladimir Zhirinovsky rúm níu prósent.

Categories: Footer Feeds

Byrjað að fjarlægja PIP brjóstapúða

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 12:09
Skurðaðgerðir vegna brottnáms PIP brjóstapúða hófust á Landspítalanum í morgun.

154 konur hafa leitað til Krabbameinsfélags Íslands og farið í ómskoðun vegna PIP-brjóstafyllinga. 89 þeirra, eða 58 prósent, hafa greinst með leka púða. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Fyrr í mánuðinum höfðu 105 konur leitað til Krabbameinsfélagsins og 68  prósent þeirra reyndust vera með leka púða. Tíðni þeirra sem eru með leka púða hefur því lækkað. 

Categories: Footer Feeds

Skotar grípi til refsiaðgerða

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 11:58
Fyrrverandi samgönguráðherra í skosku heimastjórninni hvetur skosk stjórnvöld til að grípa til refsiaðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar. Kannski verði þá hægt að ná samkomulagi um kvóta.

Engin niðurstaða fékkst í viðræður Íslendinga og Færeyinga annars vegar og Norðmanna og Evrópusambandsins hins vegar í Reykjavík í síðustu viku um skiptingu makrílkvótans. Ríkin sjálf ákveða því aflaheimildir sínar í ár en það hefur verið umdeilt undanfarin ár. Eftir fundinn sögðu Maria Damanaki, sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins, og Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í yfirlýsingu að það væri Íslendingum og Færeyingum að kenna að ekki hefði náðst samkomulag.

read more

Categories: Footer Feeds

Eldur í Klettagörðum

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 11:47
Eldur kom upp á kaffistofu hjá sendibílastöð við Klettagarða 1 skömmu fyrir hádegi.

Til að byrja með var allt tiltækt slökkvilið kallað á staðinn en þegar kom í ljós að ekki var um meiriháttar bruna að ræða var ein stöð látin sinna málinu.

Categories: Footer Feeds

Lin heldur áfram að trylla NBA

Mánudagur 20. febrúar 2012 - 11:42
Otrúleg öskubuskusaga bakvarðarins Jeremy Lin í NBA deildinni í körfuknattleik hélt áfram í gærkvöld þegar hann skoraði 28 stig og átti 14 stoðsendingar í 104-97 sigri New York Knicks á meisturum Dallas Mavericks.

Knicks höfðu tapað síðasta leik sínum, gegn New Orleans Hornets, en sneru aftur á sigurbraun í gær og liðið hefu nú unnið alla leiki sína nema einn frá því Lin vann sér sæti í byrjunarliðinu.  Lin æðið virðist engan enda ætla að taka.  Gamanþátturinn Saturdey Night Live byrjaði að þessu sinni með atriði um Lin og á meðal áhorfenda í Madison Square Garden í gær voru Kevin Kostner, örvæntingarfulla húsmóðirin Eva Longoria og stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, sem útskrifaðist úr Harvardháskólanum eins og Lin. Önnur úrslit í NBA deildinni í gær:

read more

Categories: Footer Feeds