-
föstudagur, 29. mars
VIÐAR ÖRN KJARTANSSON GENGUR TIL LIÐS VIÐ KA
,,Knattspyrnudeild KA barst í dag heldur betur stórkostlegur liðsstyrkur þegar Viðar Örn Kjartansson skrifaði undir samning við félagið. Viðar Örn er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og segir það ansi mikið um það umhverfi sem við höfum skapað hér fyrir norðan að Viðar Örn gangi í raðir KA" segir í nýrri frétt á heimasíðu KA í morgun. -
föstudagur, 29. mars
Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars
Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars kl 20:30. Hann mun flytja blöndu af nýju og gömlu efni ásamt vel völdum ábreiðum. Hann mun einnig syngja glænýtt lag sem kemur í dag 29 mars, daginn fyrir tónleikana!- 29.03
-
fimmtudagur, 28. mars
Björgunarsveitir sóttu vélsleðamann við Húsavík
Rétt upp úr klukkan 14 í dag voru björgunarsveitir á Húsavík og Aðaldal kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Nykurtjörn við Húsavík- 28.03
-
fimmtudagur, 28. mars
Tillaga að breytingum á innilaug Sundlaugar Akureyrar
Lögð hefur verið fram tillaga að innan- og utanhúss breytingum og endurbótum á innisundlauginni í Sundlaug Akureyrar. Meðal breytinga sem fram kom í tillögu frá Ágústi Hafsteinssyni arkitekt er að sagði verði niður úr öllum gluggum á austurveggnum. Svæðið undir núverandi útigöngubrú er afmarkað með glervegg og nýtt gólf steypt. Þá verði steyptur er nýr rampur fyrir fatlaða í nýtt stækkað svæði undir núverandi útigöngubrú. Einnig verði steypt upp í núverandi hurðargat inn í spennistöð sunnan við sundlaugarsal og nýtt hurðargat er sagað á austurhlið spennistöðvar. Komið verði fyrir nýjum útitröppum meðfram austurhlið.- 28.03
-
fimmtudagur, 28. mars
Enginn sótti um lóð á Jaðarsvelli
Það kom fram á fundi skipulagsráðs í gær miðvikudag að enginn hafi gert tilboð í byggingarrétt á hóteli á Jaðarsvelli en frestur var til 13. mars s.l. Átta aðilar náðu í útboðsgögn.- 28.03
-
fimmtudagur, 28. mars
Tónlistarhátíðin HnoðRi hefur göngu sína á Húsavík um páskana
Er ekki kominn tími á að brjóta aðeins upp normið hérna í fallega bænum okkar? Spyr Einar Óli Ólafsson, tónlistarmaður á Húsavík og listamaður Norðurþings. Hann stendur fremst í brúnni um þessar mundir við að skipuleggja tónlistarhátíð um páskana sem hann vonast til að verði að árlegum viðburði.- 28.03
-
miðvikudagur, 27. mars
ÚA var lengi með starfsemi í þekktum húsum í miðbæ Akureyrar
Saga Útgerðarfélags Akureyringa er athyglisverð fyrir margra hluta sakir og samofin atvinnulífi Akureyrar, enda félagið frá stofnun stór vinnuveitandi í bænum.- 27.03
-
miðvikudagur, 27. mars
Breytingar á gjaldskrá leikskóla á Akureyri
Vísbendingar eru um að breytingar sem gerðar voru á gjaldskrá leikskóla og afsláttargjöldum um síðastliðin áramót hafi jákvæð áhrif á skólastarfið.- 27.03
-
miðvikudagur, 27. mars
Sérnám í hjúkrun við SAk
Leiðsagnarár til sérfræðiviðurkenningar eða „sérnám“ í hjúkrun er nú í boði árlega á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmið sérnáms er að hjúkrunarfræðingar fái tækifæri til að þróa sérfræðiþekkingu á ákveðnu klínísku fræðasviði sem nýtist skjólstæðingum SAk. Að því tilefni skrifuðu tveir hjúkrunarfræðingar ásamt deildarstjórum, fræðslustjóra SAk og framkvæmdastjóra hjúkrunar undir samning á dögunum um að hefja sitt sérnám við SAk.- 27.03
Aðsendar greinar
-
Gunnar Níelsson skrifar
NÝR ÞÁTTUR Í HLAÐVARPI HEILSU- OG SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTUNNAR
Það er Júlía Margrét Rúnardóttir félagsráðgjafi sem er gestur þáttarins að þessu sinni og fjallar hún um stjúpfjölskyldur. -
Þórarinn Ingi Pétursson skrifar
Mikilvægt framfaraskref fyrir bændur og neytendur
Því miður hefur þróun síðustu ára verið með þeim hætti að innflutningur á kjötvörum hefur vaxið langt úr hófi fram með þeim afleiðingum að innlendur landbúnaður, þ.m.t. kjötframleiðsla hefur verið í umtalsverðri samkeppni við erlenda kjötframleiðslu. Þetta hefur aftur skapað erfiða stöðu fyrir bændur og ekki hefur verið mögulegt að hagræða frekar í greininni. Afleiðingarnar hafa verið að vöruverð hefur farið hækkandi. Við lifum í heimi sem breytist hratt, fyrir nokkrum árum datt mönnum ekki í hug að árið 2024 yrði stórfelldur innflutningur á kjöti til landsins, hvað þá innflutningur á lambakjöti til Íslands. Raunstaðan í dag er sú að samkeppni í landbúnaði kemur nú fyrst og fremst erlendis frá, og við því þarf að bregðast. -
Ingólfur Sverrisson skrifar
Misgengi í mannheimum
Enn er höggvið í sama knérunn. Fyrir ári síðan virtist eins og umræðan á Íslandi væri farin að beinast að því að íslenska krónan sé hugsanlega einn helsti skaðvaldur í efnahagslífi þjóðarinnar. Bólaði jafnvel á efasemdum um að minnsti gjaldmiðill í veröldinni sé brúklegur fyrir þjóð sem gerir kröfur um sambærileg lífskjör og nágrannaþjóðirnar búa við. Vegna smæðar sinnar og umkomuleysis hoppar örkrónan og skoppar eins og korktappi á opnu úthafi alþjóðlegrar samkeppni. Í því ölduróti er hún með öllu ófær að tryggja traust rekstrarumhverfi fyrir skuldug íslensk heimili og þau fyriræki í landinu sem ekki eru þegar búin að forða sér í skjól stærri gjaldmiðla eins og fjölmörg þeirra hafa þegar gert. -
Inga Dagný Eydal skrifar
Að vera ég sjálf
„Ég fíla svo vel að vera frónari, og búa á Íslandi“, var oft sungið þegar ég var lítil og ég gæti sem best sungið þetta lag flesta daga. Mér finnst fínt að vera í frostpinnafélaginu, elska norðangolu og rigningu og finnst veturinn ekkert svo hræðilegur. Mér leiðast reyndar umhleypingar, saltpækill á götum, sullumbull og hálka til skiptis og væri eins og margir aðrir, alsæl með froststillur vikum saman.
Mannlíf
-
Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars
Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars kl 20:30. Hann mun flytja blöndu af nýju og gömlu efni ásamt vel völdum ábreiðum. Hann mun einnig syngja glænýtt lag sem kemur í dag 29 mars, daginn fyrir tónleikana! -
Tónlistarhátíðin HnoðRi hefur göngu sína á Húsavík um páskana
Er ekki kominn tími á að brjóta aðeins upp normið hérna í fallega bænum okkar? Spyr Einar Óli Ólafsson, tónlistarmaður á Húsavík og listamaður Norðurþings. Hann stendur fremst í brúnni um þessar mundir við að skipuleggja tónlistarhátíð um páskana sem hann vonast til að verði að árlegum viðburði. -
PAPPAMANIA - Sýning gestalistamanns Gilsfélagsins Donats Prekorogja
Gestalistamaður Gilfélagsinns í mars Donat Prekorogja sýnir í Deiglunni á Akureyri, sal Gilfélagsinns. Sýningin opnar kl.17 á skírdag, fimmtudaginn 28. mars og er einungis opin þennan eina dag. -
„Mér fannst þetta rosalega fróðlegt og skemmtilegt og mig langar bara að fara á fleiri svona viðburði“
Unnu til verðlauna fyrir skynörvunarpeysu -
Eigendaskipti á elstu snyrtistofu Akureyrar
Eigendaskipti hafa orðið á elstu snyrtistofu Akureyrar en nýverið seldu þau Kristín Hildur Ólafsdóttir og Sigurður Sverrisson reksturinn á Abaco heilsulind.
Íþróttir
-
KA vann bæjarslaginn
KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór yfirspilaði KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru því með verðskuildaða forustu í hálfleik. -
Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi. Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið. Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum. -
Ekki að sinni en það koma dagar
Nú er ný lokið bikarúrslitaleik kvenna í körfubolta þar sem Þórstelpur mætttu liði Kelfavikur. Það var lið Keflavikur sem sigraði 89 – 67, staðan í hálfleik var 46 – 34 fyrir Keflavik og 16 bikarmeistaratitill félagsins staðreynd. -
Þórsstelpur leika til úrslita í VÍS bikarnum í körfubolta
Lið Þórs tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í kvöld þegar þær lögðu sterkt lið Grindavíkur með 79 stigum gegn 75 stigum Grindavikurstelpna í hörkuleik sem fram fór Laugardalshöllinni. -
Körfubolti: Sögulegur dagur hjá Þórsliðinu!
Kvennalið Þórs í körfubolta mætir liði Grindavíkur í undanúrslitum VÍS-bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20.