Flýtilyklar
Fréttir
Skemmdir unnar á golfsvæði
föstudagur 30.júl.10 09:09
Arnór Jón Sveinsson með kúbeinið sem hann fann við vélageymslu GA. Það hefur að líkindum verið notað til að brjótast inn í gáma á svæðinu.
„Þeir mega koma og sækja kúbeinið,“ segir Arnór Jón Sveinsson vélamaður hjá Golfklúbbi Akureyrar, en í vikunni voru skemmdarvargar á ferð á golfvellinum í þriðja sinn í sumar. Arnór fann kúbein austan við vélaskemmuna sem að líkindum hefur verið notuð til að opna gáma sem á svæðinu eru.
Steindór Ragnarsson vallarstjóri segir að töluverðar skemmdir hafi verið unnar á svæðinu, brotist var inn í bíl sem og einnig inn
í kúluvél sem er á æfingasvæðinu. Þá voruskemmdir unnar á golfbíl og brotist inn á tvo gáma við
vélageymsluna. Þar eru skápar fyrir félagsmenn og voru um eða yfir þrjátíu hurðir brotnar upp. „Það var engu
stolið, einungis unnin skemmdarverk,“ segir Steindór.
Þetta er í þriðja sinn sem óboðnir gestir eru á ferðinni á golfvellinum við Jaðar að næturlagi í sumar og vinna skemmdir. Steindór segir það afskaplega ömurlegt að hugsa til þess að fólk geri sér slíkt að leik. Hann segir að nú sé unnið að úrbótum og öryggismál á golfvallasvæðinu séu til skoðunar.

Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
S 1 m/s
12 °C
Reykjavíkurflugvöllur
ANA 5 m/s
15 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
Logn 0 m/s
10 °C
Ólafsfjörður
Logn 0 m/s
12 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort