Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Hvanndalsbræður hefja verslunarmannahelgina á Græna Hattinum

miðvikudagur 28.júl.10 11:09
Hvanndalsbræður verða á Græna Hattinum um verlsunarmannahelgina.
Hvanndalsbræður verða á Græna Hattinum um verlsunarmannahelgina.

Það verða Hvanndalsbræður sem hefja verslunarmannahelgina á Græna Hattinum eins og undanfarin ár. Hljómsveitin mun stíga á svið á morgun, fimmtudag, kl. 22 til 01:00 og verða einnig með tónleika á föstudag, laugardag og sunnudag.  Á föstudags- og laugardagskvöld stígur einni reggaehljómsveitin Hjálmar á svið, sem að þessu sinni mætir með blásarasveit Jagúars, en Hjálmar hafa verið iðnir við tónleikahald að undanförnu og nýkomnir frá Noregi þar sem þeir léku á tveimur tónlistarhátíðum.

 

Verslunarmannahelginni líkur svo með bítladansleik með hinum einu og sönnu Bravó, sem slóu fyrst í gegn þegar þeir hituðu upp fyrir Kinks í Austurbæjarbíói árið 1964, þá aðeins 12 og 13 ára gamlir. Með þeim í för verða Ari Jónsson (Roof Tops) og Brynleifur Hallson (Comet).


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf