Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Vel á annað hundrað sýnendur á Handverkshátíðinni

föstudagur 23.júl.10 11:06
Það er að venju margt spennandi að sjá á Handverkssýningunni á Hrafnagili.
Það er að venju margt spennandi að sjá á Handverkssýningunni á Hrafnagili.
Nú eru einungis um tvær vikur í Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla 6.-9.ágúst og er uppsetning svæðisins komin í gang. Þessi 18 ára gamla hátíð er að breytast í skemmtilega blöndu af vandaðri sölusýningu og festivali og nýtt að sjá hvert ár. Allt gert með það fyrir augum að gestir staldri lengur við og komi aftur og aftur.
 

Vel á annað hundrað sýnendur undirbúa nú komu sína norður en ásamt þeim verður fjöldinn allur af hópum og félögum á svæðinu. Einnig má nefna að verksvæði handverksmanna verður litríkt, tískusýningar, krambúð, sirkushópur, blöðrulist og andlitsmálun fyrir börnin, gríðarlega spennandi söguþorpi verður komið upp og tímavél spunnin með handverksmönnum, landnámsmenn í miðaldatjöldum sýna verklag gamla tímans frá miðöldum til baðstofustemningarinnar og svo til nútímamannsins Vélrúningur Birgis Arasonar úr Gullbrekku þar sem ullin er svo spunnin í réttinni og nú jafnvel jurtalituð í söguþorpinu sem verður áhugavert að sjá. Félag landnámshænsna verður með sýningu og sína dásamlegu fegurðarsamkeppni.  Kajaksmíði og vélasýning eru svo punkturinn yfir i-ið svo allir finni sér eitthvað skemmtilegt til að fylgjast með.
Það er því fjölbreytt hátíð framundan og allt framkvæmt með ungmennafélagsandanum þar sem hálf sveitin mun leggjast á eitt við framkvæmdina. Má þar nefna Ungmennafélag, Hjálparsveit, Kvenfélög, Hestamannafélag, Lionsklúbb.

Spennandi námskeið verða haldin í tengslum við hátíðina þann 10.-12.ágúst: Ölhænur, Flauelsskurður og Næfur.  Bókanir standa nú yfir og það þéttist á námskeiðunum. Sjá má nánari upplýsingar á http://www.handverkshatid.is/  og á Facebook-síðu hátíðarinnar.


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf