Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Bryndís Rún undirbýr sig af kappi fyrir Ólympíuleikana

föstudagur 23.júl.10 09:57
Bryndís Rún Hansen undirbýr sig þessa dagana fyrir Ólympíuleikana.
Bryndís Rún Hansen undirbýr sig þessa dagana fyrir Ólympíuleikana.

Bryndís Rún Hansen, sundkona hjá Óðni, æfir nú af kappi þessa dagana fyrir Ólympíuleika Ungmenna sem fara fram í Singapure, dagana 14-26. ágúst nk. Bryndís er nýlega komin úr þriggja vikna æfingaferð til Alaborgar með úrvalsliði Bergen og æfir fram að leikunum bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Bryndís tryggði sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum þegar hún setti Íslandsmet í 50 m flugsundi í mars sl. Í fyrstu leit út fyrir að Ísland gæti einungis sent tvo sundmenn til keppni, 1 strák og 1 stelpu vegna reiknireglu leikanna, en þar sem erfiðlega gekk að ná lágmörkum í öðrum íþóttagreinum hefur fjölgað í sundhópnum undanfarnar vikur og eru það sex sundmenn, auk einnar stúlku sem keppir í skylmingum sem fara út fyrir Íslands hönd.

Fyrir utan keppni á leikunum er hlutverk leikanna að kynna fyrir ungum íþróttamönnum sem flest, er við kemur svo stórum viðburði sem Ólympíuleikarnir eru.  


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf