Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Atli Jens og Jóhann Helgi í banni gegn Leikni á laugardaginn

miðvikudagur 21.júl.10 10:45
Jóhann Helgi Hannesson fagnar hér einu af sex mörkum sínum í deildinni fyrir Þór í sumar. Hann verður fjarri góðu gamni í leiknum mikilvæga gegn Leikni R.
Jóhann Helgi Hannesson fagnar hér einu af sex mörkum sínum í deildinni fyrir Þór í sumar. Hann verður fjarri góðu gamni í leiknum mikilvæga gegn Leikni R.

Þeir Atli Jens Albertsson og Jóhann Helgi Hannesson leikmenn Þórs, munu taka út leikbann á laugardaginn kemur í leiknum mikilvæga gegn Leikni á Þórsvelli í toppbaráttu 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu.

 

Þetta er mikil blóðtaka fyrir Þór, sem þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda í leiknum í baráttunni á toppnum. Atli Jens hefur verið sem klettur í vörninni og Jóhann Helgi hefur farið á kostum í sóknarleik Þórs og skoraði sex mörk í deildinni.


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf