Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Framsýn skorar á sjávarútvegs- ráðherra að auka þorskvótann

fimmtudagur 18.mar.10 10:23
Framsýn- stéttarfélag skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar við þorskkvóta á yfirstandandi fiskveiðiári þar sem margt virðist benda til þess að mun meira sé af fiski í sjónum en rannsóknir sýna. Ljóst er að fjöldi báta mun stöðvast á næstu vikum vegna kvótaleysis með tilheyrandi atvinnuleysi meðal sjómanna og fiskvinnslufólks.
 

Um þessar mundir eru um 17.000 manns á atvinnuleysisskrá, sem er ekki bara ömurlegt fyrir þá sem ráfa atvinnulausir um stræti og torg, heldur kostar atvinnuleysið ríkissjóð um 25 milljarða á ári miðað við stöðuna eins og hún er í dag, segir á álytkun félagsins.

Að mati Framsýnar er því full ástæða til að ígrunda það mjög gaumgæfilega hvort ekki sé rétt að taka tillit til frétta af mikilli fiskgengd í kringum landið og auka kvótann tímabundið í samráði við hagsmunaaðila.  Góð veiði undanfarið bendir til þess að mun meira sé af þorski í sjónum en mælingar Hafrannsóknarstofnunnar sýna. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þýðingu þess fyrir þjóðarbúið að aflinn verði aukinn, ekki síst í ljósi efnahagsástandsins og þess mikla atvinnuleysis sem er viðvarandi í þjóðfélaginu, segir ennfremur í ályktuninni, sem samþykkt var á stjórnar- og trúnaðarmannaráðsfundi Framsýnar í morgun.


Til baka | Senda frétt


Veðrið

Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C

Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort

Könnun

Ertu ánægð/ánægður með ráðningu á nýjum bæjarstjóra á Akureyri?






Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf