Flýtilyklar
Fréttir
Mikilvægur leikur hjá kvenna- liði Þórs í körfubolta í dag
laugardagur 13.mar.10 11:49
Bæjarbúar eru hvattir til mæta í Síðuskóla og hvetja Þór til sigurs.
Kvennalið Þórs leikur afar þýðingarmikinn leik í 1. deildinni í körfubolta í íþróttahúsi
Síðuskóla í dag, þegar lið Laugdæla kemur í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 15.30 og er aðgangur ókeypis. Með sigri tryggja
Þórsstúlkur sér annað sætið í deildinni og um leið rétt til að heyja úrslitaeinvígi við Fjölni um sæti
í Iceland Express deildinni.
Ef hið gagnstæða gerðist hins vegar, ásamt því að Skallagrímur legði Stjörnuna í þeirra síðasta leik, þá væri sá draumur hins vegar úti. Þessi staða endurspeglar í raun hversu jafnt og spennandi mótið er búið að vera í vetur og er því ágætur lokapunktur á tímabilinu. Akureyringar eru því hvattir til að mæta og láta í sér heyra af hliðarlínunni enda von á töluverðri spennu og skemmtun.
Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
S 1 m/s
13 °C
Reykjavíkurflugvöllur
ANA 7 m/s
13 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
N 1 m/s
12 °C
Ólafsfjörður
SV 2 m/s
15 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
















