Flýtilyklar
Fréttir
„Kominn tími á að við vinnum FH"
laugardagur 13.mar.10 08:51
KA/Þór mætir FH á heimvelli í dag.
KA/Þór og FH mætast í KA- heimilinu kl. 15:00 í dag í N1- deild kvenna í handbolta. FH hefur haft gott tak á norðanstúlkum í
vetur. Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni og hefur FH sigrað í bæði skiptin og þá sló FH einnig KA/Þór út
í 8- liða úrslitum bikarkeppninnar. Fyrir leikinn í dag munar sjö stigum á liðunum, FH hefur 18 stig í fimmta sæti deildarinnar en
KA/Þór hefur 11 stig í sjöunda sæti.
„Ég held að það sé kominn tími á að við vinnum FH," segir Stefán Guðnason þjálfari KA/Þórs, en lengri upphitun um leikinn má lesa í nýjasta tölublaði Vikudags.
Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
S 1 m/s
12 °C
Reykjavíkurflugvöllur
ANA 5 m/s
15 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
Logn 0 m/s
10 °C
Ólafsfjörður
Logn 0 m/s
12 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort















