Flýtilyklar
Fréttir
SA Íslandsmeistari í íshokkí
miðvikudagur 10.mar.10 21:32
Jón Benedikt Gíslason fyrirliði SA og félagar hans höfðu ástæðu til að brosa breitt í kvöld.
Skautafélag Akureyrar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla með 6:2 sigri gegn Birninum í Skautahöll Akureyrar í
kvöld. Eftir jafnan fyrsta leikhluta sem endaði 1:1, tók SA öll völdin í öðrum leikhluta og skoraði þrjú mörk gegn engu Bjarnarins og
hafði 4:1 forystu fyrir þriðja og síðasta leikhluta. Þar skoruðu SA tvö mörk gegn einu Bjarnarins og tryggðu sér fjögurra marka sigur.
Stefán Hrafnsson skoraði tvívegis fyrir SA í leiknum og þeir Gunnar Darri Sigurðsson, Jóhann Már Leifsson, Ingvar Þór Jónsson og Andri Freyr Sverrissin sitt markið hver. Mörk Bjarnarins skoraði Birgir Jakob Hansen.
Nánar verður fjallað um leikinn í Vikudegi á morgun.
Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
S 1 m/s
12 °C
Reykjavíkurflugvöllur
ANA 5 m/s
15 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
Logn 0 m/s
10 °C
Ólafsfjörður
Logn 0 m/s
12 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort















