Flýtilyklar
Fréttir
Óðinn vann tvenn gullverðlaun á Fjölnismóti
þriðjudagur 9.mar.10 20:33
Rúmlega 20 krakkar á aldrinum 8- 12 ára frá Sundfélagi Óðins tóku þátt í Fjölnismótinu í sundi sem haldið var í Laugardagslauginni sl. helgi. Krakkarnir voru margir hverjir að taka þátt í sínu fyrsta móti utan Eyjarfjarðar og stóðu sig vel.
Má nefna að Aron Bjarki Jónsson vann gullverðlaun í 50 m bringusundi hnokka og silfurverðlaun í 50 m baksundi hnokka og Snævar Atli Halldórsson vann silfurverðlaun í 50 m bringusundi hnokka. Þá fékk A- hnátu sveit Óðins gullverðlaun í 200 m fjórsundi. Sveitina skipuðu þær Ólöf Maren Bjarnadóttir, María Arnarsdóttir, Aldís Hulda Eggertsdóttir og Arndís Eva Erlingsdóttir.
Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
















