Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Allar DNG tölvurúllur frá árinu 2007 með þjófavörn

þriðjudagur 9.mar.10 12:18
"Vegna mikillar umræðu um þjófnað á handfærarúllum viljum við taka það fram sem framleiðendur á DNG handfærum að allar tölvurúllur sem við höfum smíðað síðan 2007 eru með þjófavörn," segir í fréttatilkynningu frá Slippnum Akureyri. "Þjófavörnin er fólgin í því að slá þarf inn fjögurra stafa kóða til þess að opna vinduna, eins og á GSM farsímum."

 

 

"Við erum síðan þeir einu sem getum opnað vinduna ef vindan læsist, sé réttur kóði ekki sleginn inn.  Því er mikilvægt að eigendur DNG handfæra hafi framleiðslunúmer á vindunum sínu á hreinu og tilkynni allan þjófnað til lögreglu og okkar. Eigendur DNG C-6000i handfæravindna sem smíðaðar voru fyrir 2007 geta látið uppfæra forritið í vindunni hjá okkur og fengið þar með þjófalásinn í vinduna sína," segir ennfremur í tilkynningu Slippsins.

 


Til baka | Senda frétt


Veðrið

Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C

Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort

Könnun

Ertu ánægð/ánægður með ráðningu á nýjum bæjarstjóra á Akureyri?






Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf