Flýtilyklar
Fréttir
Bjarki vann tvenn gullverðlaun á MÍ
mánudagur 8.feb.10 15:07
Bjarki Gíslason kann vel við sig í stangarstökkinu en Bjarki bætti tveimur Íslandsmeistaratitlum í safnið er hann sigraði í tveimur greinum á MÍ um liðna helgi.
Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður frá UFA, vann til tveggja Íslandsmeistaratitla á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem haldið var í Laugardagshöllinni sl. helgi. Bjarki sigraði í 60 m grindahlaupi karla á tímanum 8, 46 sekúndum og í stangarstökki karla þar sem hann stökk 4,46 m. Örn Dúi Kristjánsson UFA hafnaði í öðru sæti í langstökki karla án atrennu er hann stökk 3,03 m. Í heildarstigakeppni félaga hafnaði UFA í sjötta sæti með 9683 stig.
UMSE átti einnig sína fulltrúa á mótinu og hæst ber að nefna árangur Kristjáns Godsk Rögnvaldssonar sem lenti í þriðja sæti í 400 m hlaupi karla á tímanum 51,31 sek. UMSE hafnaði í tíunda sæti í heildarstigakeppni félaga með 2244 stig.Til baka | Senda frétt
Veðrið
Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
















