Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Bryndís Rún Hansen Íþróttamaður Akureyrar 2009

miðvikudagur 13.jan.10 22:36
Þrjú efstu í kjörinu, f.v. Rakel Hönnudóttir, Bryndís Rún Hansen og Oddur Gretarsson.
Þrjú efstu í kjörinu, f.v. Rakel Hönnudóttir, Bryndís Rún Hansen og Oddur Gretarsson.
Bryndís Rún Hansen sundkona úr Óðni er Íþróttamaður Akureyrar 2009, en kjörinu var lýst í hófi í Ketilshúsinu fyrr í kvöld. Alls voru 15 íþróttamenn tilnefndir af aðildarfélögum ÍBA. Í öðru sæti varð knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir frá Þór/KA og í þriðja sæti handboltakappinn Oddur Gretarsson frá Akureyri Handboltafélagi.

 

 

Bryndís Rún er vel að titlinum komin en árangur hennar á sl. ári er með eindæmum góður. Hún vann til þriggja Íslandsmeistaratitla, í 50 m flugsundi í bæði 25 m laug og 50 m laug og í 100 m flugsundi. Einnig setti Bryndís tvö Íslandsmet á árinu 2009, í 50 m flugsundi og 100 m flugsundi. Á Evrópumeistaramóti unglinga í Prag sl. sumar komst hún annað árið í röð í úrslit og er önnur íslenska stúlkan frá upphafi sem náð hefur að synda í úrslitum á Evrópumeistaramóti. Alls keppti hún á þremur alþjóðlegum mótum erlendis á árinu og vann þar til verðlauna.

Aðrir sem tilnefndir voru í kjörinu og fengu viðurkenningar voru Andrea Ásgrímsdóttir, kylfingur í Golfklúbbi Akureyrar, Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður UFA, Bjarki Sigurðsson akstursíþróttamaður í KKA, Bragi Óskarsson skotmaður í Skotfélagi Akureyrar, Gauti Elfar Arnarson siglingamaður frá Nökkva, Guðrún Jóna Þrastardóttir fimleikakona í Fimleikafélagi Akureyrar, Hannes Rúnar Hannesson knattspyrnumaður í Hömrunum, Ingvar Þór Jónsson, íshokkímaður í Skautafélagi Akureyrar, Íris Guðmundsdóttir skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar, Ragnar S. Ragnarsson akstursíþróttamaður í Bílaklúbbi Akureyrar, Þorbjörn Hreinn Matthíasson hestamaður í Létti og Poitr Kempisty blakmaður frá KA.

 

 

 

 


Til baka | Senda frétt


Veðrið

Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C

Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort

Könnun

Ertu ánægð/ánægður með ráðningu á nýjum bæjarstjóra á Akureyri?






Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf