Vikudagur
Verkþekking og reynsla er ekki keypt út í búð
Akureyri, færði skólanum að gjöf, fyrir hönd fyrirtækisins, veglegt ræðupúlt við vígslu hússins á dögunum. Einnig
afhenti hann Stefáni B. Sigurðssyni lykilinn að nýja húsnæðinu, því til staðfestingar að fyrirtækið hefði lokið
framkvæmdum.
Íbúar fari með endurvinnslu- sorp út á hverfisvelli
Akureryi, en fjallað var um sorpmál og framtíðarsýn á fundi ráðsins á dögunum. Tvær leiðir, nefndar A og B voru til
umfjöllunar og sýndist sitt hverjum.
Stjarnan lagði Þór/KA að velli
Þórs/KA en þær Soffía Gunnarsdóttir, Katie McCoy og Inga Birna Friðjónsdóttir skoruðu mörk Stjörnunar. Inga Birna skoraði
sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá urðu þau óvæntu úrslit að FH lagði Breiðablik 3:2 á Kaplakrikavelli.
Blikastúlkur halda þó öðru sætinu með 32 stig en Þór/KA hefur 31 stig í þriðja sæti.
Arna Sif og Silvía Rán í hópnum sem leikur í forkeppni EM
landsliðshóp kvenna í knattspyrnu, fyrir forkeppni EM 2011. Forkeppnin fer fram í Búlgaríu og leikur Ísland í riðli með heimamönnum,
Ísrael og Úkraínu. Leikirnir fara fram dagana 11.-18. september. Tvö efstu liðin í hverjum riðli tryggja sér sæti í milliriðlum, en
þangað kemst líka sú þjóð sem nær bestum árangri þeirra liða sem hafna í þriðja sæti síns riðils en
riðlarnir eru alls 11.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Ásta Eir Árnadóttir, Breiðablik
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðablik
Hildur Sif Hauksdóttir, Breiðablik
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Breiðablik
Birna Berg Haraldsdóttir, FH
Sigrún Ella Einarsdóttir, FH
Fjolla Shala, Fylkir
Hanna María Jóhannsdóttir, Fylkir
Sara Hrund Helgadóttir, Grindavík
Heiðrún Sara Guðmundsdóttir, ÍA
Sóley Guðmundsdóttir, ÍBV
Katrín Ásbjörnsdóttir, KR
Rebekka Sverrisdóttir,KR
Heiða Dröfn Antonsdóttir, Valur
Katrín Gylfadóttir, Valur
Þórdís María Aikman, Valur
Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA
Silvía Rán Sigurðardóttir, Þór/KA
Þjálfari er Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Erfitt að fá fagfólk til starfa á FSA um þessar mundir
það er langt í frá auðvelt að fá t.d. sérfræðinga af ýmsu tagi," segir Halldór Jónsson forstjóri
Sjúkrahússins á Akureyri.  Nýverið hafa þrjár stöður lækna, deildarlæknis við lyflækningadeild, yfirlæknir
á dag- og göngudeild lyfjadeildar og sérfræðings í lyflækningum, verið auglýstar lausar til umsóknar en viðbrögð ekki
verið mikil.