Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

  • Björgunarsveitir í Eyjafirði kallaðar út

    miðvikudagur 8.sep.10 23:30
    Björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út klukkan rúmlega níu í kvöld vegna hestamanns sem slasaðist í Þorgeirsfirði, sem er á milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Björgunarsveitir eru á leið á staðinn, hægt er að komast langleiðina á bíl en síðan þarf að ganga yfir hálsinn frá Hvalvatnsfirði yfir í Þorgeirsfjörð.

  • Málum vegna skulda í skólum fjölgað um 50 á milli ára

    miðvikudagur 8.sep.10 20:20

    Dan Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar og Eggert Þór Óskarsson forstöðumaður fjárreiðudeildar mættu á síðasta fund skólanefndar og gerðu grein fyrir fyrirkomulagi innheimtumála og fóru yfir stöðuna á innheimtum sem heyra undir skóladeild. Fram kom að málum hjá Intrum vegna skulda í skólum hefur fjölgað um 50 á milli ára og heildarskuldir úr rúmum 14 milljónum króna í rúmar 19 milljónir króna.

  • Sæmdur heiðursdoktors nafnbót við hug og félagsvísindasvið HA

    miðvikudagur 8.sep.10 14:58
    Athöfnin fer fram í Hákólanum á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
    Á morgun fimmtudag, verður Nigel David Bankes prófessor við lagadeild Háskólans í Calgary, sæmdur heiðursdoktors nafnbót við hug og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri vegna ómetanlegs framlags síns á sviði heimskautaréttar og tengdra greina. Nigel Bankes hefur á liðnum árum getið sér orð sem einn helsti sérfræðingur á sviði alþjóðlegs umhverfis- og auðlindaréttar en hann er einnig þekktur fyrir framlag sitt á sviði mannréttinda frumbyggja.

  • Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti leið B við sorphirðu

    miðvikudagur 8.sep.10 11:00
    Leið B gerir ráð fyrir tveimur sorptunnum við heimili og hverfisvöllum fyrir endurvinnslusorp.
    Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær, með 7 atkvæðum gegn 4, ákvörðun framkvæmdaráðs frá 6. ágúst sl. um að breyta fyrri ákvörðun við sorphirðu úr leið A í leið B, sem er í samræmi við umsögn og bókun meirihluta umhverfisráðs 19. ágúst. Leið B gerir ráð fyrir tveimur sorptunnum við heimili og að íbúar fari með endurvinnslusorp út á hverfisvelli.

  • Tilboð opnuð í rannsóknar- boranir vegna Vaðlaheiðarganga

    miðvikudagur 8.sep.10 09:52

    Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. á Selfossi bauð lægst í rannsóknarboranir vegna Vaðlaheiðarganga en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og hljóðaði lægsta tilboðið upp á tæpar 36,9 milljónir króna, eða 78% af kostnaðaráætlun. Um er að ræða 600 m kjarnaborun og skal verkinu að fullu lokið þann 15. nóvember nk.

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf